Ásgrímur Kristján Sverrisson

Ögurstund útvarpsstjóra
Í dag er aðalfundur Ríkisútvarpsins ohf. Verður fróðlegt að sjá hvort útvarpsstjóri, forstjóri fyrirtækisins, verði kallaður á teppið. Varla geta Alþingi (sem skipaði stjórnina), fjármálaráðherra (sem fer með hlutabréfið eina) og menntamálaráðherra sætt sig við ákvörðun hans um að veita ekki þá þjónustu sem RÚV er uppálagt í lögum, með því að hætta að mestu kaupum á innlendu dagskrárefni.

Þó er vandséð að svo verði því stjórn fyrirtækisins virðist hafa samþykkt gjörning Páls. Hversvegna, er á huldu. Skýringar óskast.

Sérstakur skattur rennur til RÚV gegn því að stofnunin uppfylli ákveðin skilyrði sem kveðið er á um í lögum og þjónustusamningi þeim tengdum. Þau eru ekki uppfyllt.

Líkja má þessu við að fá afhentan glæsijeppa á tveimur dekkjum en vera gert að greiða fullt verð. Ákveðið var að eyða svo miklum peningum í afturdekkin að ekkert var eftir fyrir framdekkjum. Glæsijeppinn er ljómandi fallegur en notkunarmöguleikar hans takmarkaðir.

Alvarlegar athugasemdir gerðar við störf útvarpsstjóra

Menntamálaráðherra hefur gefið í skyn að hún sé ekki sátt, í viðtali við Iceland Cinema Now og Land & syni. Þar segist hún hafa efasemdir um aðgerðir útvarpsstjóra og að ljóst sé að ákvörðunin sé ekki í samræmi við þær væntingar og skilyrði sem eru sett fram í þjónustusamningi.

Þetta eru alvarlegar athugasemdir.

Skýrsla gagnrýnir útvarpsstjóra

Fleiri spjót standa á útvarpsstjóra. Í nýútkominni skýrslu starfshóps um RÚV er, auk margra athugasemda um rekstrarfyrirkomulagið, að finna verulegar efasemdir um stjórnun stofnunarinnar.

Gagnrýnt er að æðsti yfirmaður Ríkisútvarpsins lesi fréttir vegna mikilvægs hlutverks hans í hagsmunagæslu fyrir Ríkisútvarpið. Hér er verið að tala um útvarpsstjórann sem fréttaþul.

Gagnrýnt er að yfirmaður dagskrár sé einnig yfirmaður og þátttakandi í einum dagskrárlið, því það hljóti að hafa áhrif á faglega stefnumótun og umræðu um dagskrá miðilsins. Hér er verið að vísa til dagskrárstjóra, sem nýlega sagði af sér. Gagnrýnin beinist að útvarpsstjóra, sem ákvað og ber ábyrgð á þessu fyrirkomulagi.

Þá er lagt til að ráðningartími útvarpsstjóra verði tímabundinn og að starfið verði auglýst. Það sama eigi við um lykilstarfsmenn á sviði dagskrár, dagskrárstjóra hvers sviðs og fréttastjóra.

Það er afar athyglisvert að ástæða þyki til að hnykkja á öllu þessu. Þessar athugasemdir benda til að hópurinn telji nokkuð skorta á fagleg vinnubrögð hjá yfirstjórn RÚV.

Dagskráryfirlýsing útvarpsstjóra

RÚV er ekki aðeins fréttastöð. RÚV er einnig stofnun með skilgreindar menningarlegar skyldur. Það er annað jafn mikilvægt erindi. Aðgerðir útvarpsstjóra benda til að skilningi hans á þessu sé ábótavant.

Yfirlýsing Páls síðastliðinn föstudag var ekki aðeins yfirlýsing um niðurskurð. Þetta var einnig yfirlýsing um dagskráráherslur.

Hann hefur úr fjórum og hálfum milljarði að spila, þar af 2.8 milljörðum (2009) í innlenda dagskrá með öllu. Hvað gerir hann þegar skera þarf niður um aðeins 270 milljónir, en ekki  420 milljónir vegna þess hve „vel rekstur RÚV stendur“ eins og hann sjálfur orðaði það? Hann velur að leggja niður nær alla viðameiri og vandaða innlenda dagskrá í sjónvarpi, heimildamyndir, leikið efni og bíómyndir.

Þetta efni fær RÚV fyrir aðeins brot af heildar dagskrárkostnaði sínum (tæplega 4%), eða aðeins 108 milljónir á síðasta ári, samkvæmt upplýsingum menntamálaráðherra á fjölmennum fundi hjá VG í gærkvöldi. Sama dag kom fram í Fréttablaðinu að RÚV hefði ekki getað sundurliðað upphæðina eftir verkefnum vegna þess hve um mikla vinnu væri að ræða! Katrín upplýsti hinsvegar að hún hefði þennan lista undir höndum. Hún hefur verið beðin um að leggja hann fram.

Efnið fær RÚV fyrir aðeins örlítið brot af heildarkostnaði, sem nemur mörg hundruð milljónum. Þetta innlenda dagskrárefni er hinsvegar stór hluti af tilvistarlegri réttlætingu RÚV. Þjóðin er ekki að fá það RÚV sem lög kveða á um. Þetta er því dagskrárstjórn sem stenst ekki faglegar kröfur, né lagalegar og menningarlegar skyldur RÚV.

Rök útvarpsstjóra standast ekki

Það er afar brýnt að starfi útvarpsstjóra gegni maður sem hafi skilning á heildarhlutverki RÚV og hafi kjark til að gera það sem þarf að gera, í stað þess að nota kvikmyndagerðarmenn sem barefli í pólitík við stjórnvöld, eins og Páll hefur reynt að gera en misheppnast algerlega.

Yfirlætislegt tal útvarpsstjóra um að kvikmyndagerðarmenn ættu frekar að beina reiði sinni að stjórnvöldum vegna niðurskurðarkröfu þeirra stenst ekki. Kvikmyndagerðarmenn gera sér fyllilega grein fyrir því að niðurskurður er óhjákvæmilegur hjá þeim eins og öðrum. Þeir sætta sig hinsvegar ekki við að greinin sé skorin niður við trog af því að útvarpsstjóri kýs að líta framhjá þeim skyldum sem RÚV hefur. Þjóðin sættir sig ekki heldur við að vera svikin um það efni sem hún er að greiða fyrir.

Treysti stjórnendur RÚV sér ekki til að reka almannaútvarp og sjónvarp samkvæmt lagaramma og vilja þjóðarinnar, þá ber Páli Magnússyni og öðrum yfirmönnum RÚV að segja af sér.

Svona RÚV vil ég
Ég hef tekið saman slatta af greinum sem ég hef skrifað allt frá 1996 um málefni Sjónvarpsins. Þeim er raðað í tímaröð, sú nýjasta efst. Í þeim er að finna fjölda upplýsinga sem ég hef tekið saman héðan og þaðan, sem og ítarlegan rökstuðning fyrir útvarpi í almannaþágu. Greinarnar hafa birst í ýmsum fjölmiðlum, t.d. Landi & sonum, Morgunblaðinu, Fréttablaðinu og Mannlífi.

Enn og aftur: til hvers er RÚV?

Skrifað 20.12.2008

Fjallað um planað frumvarp um RÚV og það gagnrýnt. Einnig gagnrýni á stefnuleysi stjórnvalda gagnvart RÚV. Þarna er líka að finna einfalda og skýra útlistingu á megindagskráráherslum RÚV eins og þær ættu að vera – sérstaklega þegar hart er í ári.

http://asgrimur.wordpress.com/2008/12/20/enn-og-aftur-til-hvers-er-ruv/

Hvar verður aukningin á íslensku efni í RÚV?

Skrifað 23.1.2007

Fjallar um hlutfallslega skiptingu innlendrar dagskrár og síðan er stillt upp óskalista um slíkt efni og RÚV beðið um áætlanir af því tagi. Þær hafa aldrei litið dagsins ljós.

http://asgrimur.wordpress.com/2007/01/23/hvar-ver%C3%B0ur-aukningin-a-islensku-efni-i-ruv/

RÚV: Hugsum út fyrir rammann

Skrifað 22.1.2007

Fjallar um þá nýsett RÚV-lög og hvað vantar í þau. Lagt til að menn hugsi út fyrir rammann og skoði ýmsar leiðir varðandi útvarp í almannaþágu.

http://asgrimur.wordpress.com/2007/01/22/ruv-hugsum-ut-fyrir-rammann/

Það á afmæli í dag…

Skrifað 30.9.2006

Fjallað um RÚV í tilefni 40 ára afmælis. Hvatning til útvarpsstjóra um skýra stefnumörkun í dagskrársetningu í kjölfar þjónustusamnings.

http://asgrimur.wordpress.com/2006/09/30/thad-a-afmaeli-i-dag/

Til hvers er RÚV?

Skrifað 7.5.2004

Flutt sem erindi á fundi Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði þar sem málefni RÚV voru til umræðu. Svara leitað við spurningunni til hvers eigum við að reka Ríkisútvarp? Varað við upptöku nefskatts. Hvatt til breytinga á yfirstjórn RÚV. Fjallað um hvernig BBC ræður sér útvarpsstjóra og spurt afhverju við stöndum ekki svipað að slíkum málum.

http://asgrimur.wordpress.com/greinar/til-hvers-er-ruv/

Sáttmáli um RÚV og eflingu innlendrar dagskrár

Skrifað 5.3.2004

Birtist í Morgunblaðinu sem svar við grein Markúsar Arnar útvarpsstjóra. Greinin er tilraun til að smíða brú milli stjórnenda RÚV og þeirra sem vilja sjá þar vandaða og þróttmikla innlenda dagskrá.

http://asgrimur.wordpress.com/greinar/sattmali-um-ruv-og-eflingu-innlendrar-dagskrar/

Framtíð Sjónvarpsins

Skrifað 24.9.2000

Birtist í Morgunblaðinu. Fjallað um RÚV vítt og breitt, m.a. hvernig standa á dagskráruppbyggingu með hliðsjón af tilhögun mála hjá BBC og Channel Four í Bretlandi.

http://asgrimur.wordpress.com/greinar/framtid-sjonvarpsins/

Hvað bíður Sjónvarpsins?

Skrifað 15.3.1996

Fyrsta grein mín um málefni Sjónvarpsins. Birtist í tímaritinu Mannlíf. Fjallar um stöðu þess á 30 ára afmælinu. Meðal annars fjallað um Efstaleitishúsið og hvort gera eigi RÚV að útgáfusjónvarpi.

http://asgrimur.wordpress.com/greinar/hva%C3%B0-bi%C3%B0ur-sjonvarpsins/

Punktar vegna niðurskurðar á KMÍ og RÚV
Vegna niðurskurðar á framlögum til kvikmyndagerðar og yfirlýsingar útvarpsstjóra um að draga stórlega úr innkaupum á íslensku efni, eru hér nokkrir punktar sem dreifa má á netinu, einn eða fleiri í senn.

Varðandi niðurskurð til kvikmynda:

Hver króna sem ríkið veitir í gerð kvikmynda fimmfaldast með öðrum fjárfestingum. Þegar upp er staðið fær ríkið meira til baka í formi skatta en það lætur í kvikmyndagerð.

Íslenskar kvikmyndir, leikið sjónvarpsefni og heimildamyndir njóta gríðarlegs áhuga almennings. Að meðaltali sækja 6% þjóðarinnar hverja mynd í kvikmyndahúsum, eitt hæsta hlutfall sem þekkist. Einstakar myndir hafa fengið allt að þriðjung þjóðarinnar í bíó. Þá nýtur íslenskt sjónvarpsefni gríðarlegra vinsælda, eins og skýrt kemur fram í áhorfskönnunum.

Íslenskar kvikmyndir, leiknar seríur, stuttmyndir og heimildamyndir ferðast um allan heiminn, hljóta reglulega verðlaun og viðurkenningar á hátíðum og eru sýndar í kvikmyndahúsum og í sjónvarpi margra landa. Þær eru ein helsta kynning á menningu okkar gagnvart umheiminum og ein stærsta ástæða sem ferðamenn nefna fyrir heimsókn sinni til landsins.

Niðurskurður á framlögum til kvikmynda og fyrirætlanir útvarpsstjóra um að draga stórlega úr innkaupum á íslensku efni munu rústa efnahag íslenska kvikmyndaiðnaðarins, þar sem starfa yfir 300 manns.

Þetta mun leiða til þess að erfitt verður að þjónusta þá erlendu aðila sem hingað koma með verkefni og treysta á faglega þekkingu innanlands. Það leiðir svo af sér enn frekara tekjutap fyrir bæði iðnaðinn og ríkið.

Kvikmyndaiðnaðurinn hefur þegar horft uppá eina stærstu tekjulind sína dragast stórkostlega saman, með hinum mikla niðurskurði í framleiðslu sjónvarpsauglýsinga.

Varðandi niðurskurðinn á RÚV:

Páll Magnússon útvarpsstjóri er maðurinn sem ákveður dagskráráherslur RÚV. Maður með þunga og mikla ábyrgð.

Yfirlýsing hans á föstudag var yfirlýsing um dagskrá. Hann hefur úr fjórum og hálfum milljarði að spila, þar af 2.8 milljörðum (2009) í innlenda dagskrá með öllu.

Hvað gerir hann? Hann velur að leggja niður nær alla viðameiri og vandaða innlenda dagskrá í sjónvarpi, heimildamyndir, leikið efni og bíómyndir.

Þetta efni – sem RÚV fær fyrir aðeins örlítið brot af heildarkostnaði þess og enn minna brot af heildar dagskrárkostnaði stofnunarinnar – er stór hluti af tilvistarlegri réttlætingu RÚV.

RÚV er ekki fréttastöð. RÚV er einnig stofnun með skilgreindar menningarlegar skyldur. Það er annað jafn mikilvægt erindi.

Þetta er því dagskrárstjórn sem stenst ekki faglegar kröfur, né lagalegar og menningarlegar skyldur RÚV.

Það er afar brýnt að starfi útvarpsstjóra gegni maður sem hafi skilning á heildarhlutverki RÚV og hafi kjark til að gera það sem þarf að gera, í stað þess að nota kvikmyndagerðarmenn sem barefli í pólitík við stjórnvöld.

Treysti stjórnendur RÚV sér ekki til að reka almannaútvarp og sjónvarp samkvæmt lagaramma og vilja þjóðarinnar, þá ber Páli Magnússyni og öðrum yfirmönnum RÚV að segja af sér.

Ályktun 300 manna fundar kvikmyndagerðarmanna á Hótel Borg, mánudagskvöldið 25. janúar 2010:

„Þessi fundur fordæmir þann ójöfnuð sem fram kemur í 35% lækkun framlaga til kvikmyndasjóða á fjárlögum 2010 sem er fordæmalaus niðurskurður í íslenskum menningariðnaði. Jafnframt fordæmir fundurinn hótanir stjórnenda RÚV um að draga verulega úr innkaupum á íslensku efni. Með slíkum aðgerðum brjóta stjórnendur þær menningarlegu og lagalegu skyldur sem þeim eru lagðar á herðar sem og óskir eigenda sina og áhorfenda sem vilja vandað íslenskt efni. Treysti stjórnendur RÚV sér ekki til að reka almannaútvarp og sjónvarp samkvæmt lagaramma og vilja þjóðarinnar, þá ber Páli Magnússyni og öðrum yfirmönnum RÚV að segja af sér.”

Endilega sendið sem flestum.

Netfangaskrá alþingismanna er hér:

Netföng stjórnenda RÚV og stjórnar eru hér:

Páll Magnússon, útvarpsstjóri:   pall.magnusson@ruv.is

Bjarni Guðmundsson, framkvæmdastjóri: bjarnig@ruv.is

Ari Skúlason, stjórnarmaður: ari.skulason@landsvaki.is (hann er líka hér á facebook:  http://www.facebook.com/ariskula )

Kristín Edwald, stjórnarmaður: kristin@lex.is

Margrét Frímannsdóttir, stjórnarmaður: MaggaFrLH@tmd.is

Svanhildur Kaaber, stjórnarmaður: sk@khi.is

State of the Union 09/10
Staða Gönguklúbbsins Gríms, 2. janúar 2010. Frá vinstri Bergur Ólafsson, Davíð Þór Jónsson, Hallur Helgason, Pétur Óskarsson, Dagur Hilmarsson, Kári Eiríksson, Úlfur Grönvold og Ásgrímur Sverrisson.

Smellið “taggið” hér að neðan til að sjá eldri myndir.

Ólíkt hafast menn að
Fleira er líkt með Íslandi og Írlandi en nöfnin. Bæði löndin styðja t.d. kvikmyndagerð með opinberu fé. Bæði löndin fengu rækilega að kenna á því við bankahrunið í fyrra og þurfa að skera verulega niður í opinberri þjónustu. Á Íslandi var gert ráð fyrir 34% niðurskurði á fé til kvikmyndagerðar í fjárlagafrumvarpi. Á Írlandi lagði sérstök nefnd til í sumar að Írski kvikmyndasjóðurinn yrði lagður niður.

Galnar hugmyndir báðar, en kannski skiljanlegar þegar menn eru í heljargreipum örvæntingar gagnvart þrítugum hamrinum. Yfirleitt endar það þó með því að menn skríða uppúr holunni og taka sig saman í andlitinu.

En ólíkt hafast menn að.

Á Írlandi ákváðu þeir á dögunum að loka ekki Írska kvikmyndasjóðnum. Í staðinn var ákveðið að skera framlög til hans niður um 5%, ögn minna en 6% meðaltals niðurskurður til listgreina.

Þeir eru semsagt komnir uppúr holunni. Þeir munu hafa komist að þessari niðurstöðu vegna hins menningarlega, sjálfsmyndarlega, ímyndarlega og efnahagslega gildis kvikmynda fyrir Írland. Menningarmálaráðherrann Martin Cullen hafði sérstaka forgöngu um að berja þetta í gegn og lagði hann sérstaka áherslu á mikilvægi menningar og skapandi starfa fyrir landið á alþjóðlegum vettvangi.

Á Íslandi lagði Fjárlaganefnd Alþingis hinsvegar til á dögunum að draga lítilsháttar úr niðurskurðinum; frá 34% í 23%.

Hér eru menn semsagt ennþá í holunni.

Þegar fjárlagafrumvarpið var lagt fram tók Katrín Jakobsdóttir menningarmálaráðherra skýrt fram í viðtali við Fréttablaðið að þarna sé ekki verið að horfa til listgreinarinnar sem slíkrar og að hún skildi vel áhyggjur kvikmyndagerðarmanna. Jafnframt sagðist hún reikna með að menn myndu horfa til þess að íslensk kvikmyndagerð taki ekki bara við peningum heldur skili líka tekjum aftur í ríkiskassann.

Ekkert hefur enn komið fram um að hún meini stakt orð. Niðurskurður til annarra listgreina er að meðaltali um 4%. Engin fer yfir 6%. Nema kvikmyndagerð. Gerð er tillaga um sexfalt hærri niðurskurð af dýnamískri listgrein sem skilar ríkissjóði meiri tekjum en nemur framlögum. Þetta er hugsað sem sárabót frá upphaflegri tillögu sem kvað á um rúmlega áttfalt hærri niðurskurð.

Hversvegna?

Það er ekki svo að kvikmyndagerðarmenn skilji ekki að skera þarf niður. Þeir skilja bara ekki hversvegna stjórnvöld leggja sig sérstaklega fram um að skera aðeins þessa tilteknu listgrein niður við trog.

Eins og Bandalag íslenskra listamanna og hagsmunasamtök kvikmyndagerðarmanna hafa rækilega bent á, er niðurskurður af þessari stærðargráðu glapræði. Fjöldi starfa glatast, erlend fjárfesting fer forgörðum, tekjur ríkisins minnka en útgjöld aukast.

Norsk stjórnvöld hafa tilkynnt að framlög til kvikmyndagerðar verði aukin um 8% á næsta ári. Var þegar vel í lagt hjá Norðmönnum, en engu að síður er þetta mesta hækkun í einu lagi á framlögum til kvikmyndagerðar þar í landi. Í þessu samhengi má benda á að samkvæmt samkomulagi menntamálaráðuneytis og aðila kvikmyndagerðar frá 2006 stóð til að auka framlög árið 2010 um 13%. Kvikmyndagerðarmenn hafa byggt upp starfsemi sína á undanförnum árum miðað við þetta samkomulag. Heildar niðurskurður 2010 miðað við samkomulagið og núverandi niðurskurðartillögu, nemur því um 36%. Raunlækkun er svo enn meiri.

Verkin tala. Þessar tillögur, sem að sjálfsögðu eiga uppruna sinn í ráðuneytinu þrátt fyrir að ætla megi annað af málflutningi ráðherrans, sýna hvar áherslurnar liggja. Ráðherrann kýs að skera margfalt niður framlög til kvikmyndagerðar miðað við aðrar listgreinar. Nái þetta fram að ganga verður hinu mikla  uppbyggingarstarfi áratugsins í kvikmynda- og sjónvarpsmyndagerð rústað, um leið og tekjur ríkissjóðs minnka enn frekar.

Verður þetta arfleifð menningarmálaráðherrans?

Mynd dagsins: Hlustum á Bretland
Var að komast yfir eintak af Listen to Britain, þessari dásamlegu heimildamynd Humphrey Jennings frá stríðsárunum. Á disknum eru einnig nokkrar aðrar myndir eftir þennan snilling, Fires Were Started, London, Can Take It, Words for Battle, A Diary for Timothy og Family Portrait. Hef ekki séð þær en sú fyrstnefnda er einhver sú fallegasta mynd sem gerð hefur verið.

Berið hana svo saman við annað snilldarverk eftir annan ljóðrænan meistara breskan. Hér er brot úr Distant Voices Still Lives eftir Terence Davies.

Samsæri og uppljóstranir í bíómyndum
Hanna G. fékk mig til að spjalla um samsæris- og uppljóstraramyndir í þætti sínum Vítt og breitt á Rás 1 í gær. Ég lagði m.a. útaf The Matrix, The Insider, Enemy of the State, The Conversation, All the President’s Men, The Parallax View, The International og smávegis um Hitchcock. Það má hlusta á þetta hér:

ÁS spjallar um samsæris- og uppljóstraramyndir í Vítt og breitt á Rás 1, 5. ágúst 2009.

Mæli annars með The International. Fróðleg mynd fyrir áhugamenn um bankastarfsemi.

Evrópuumræðunni er lokið
Æ nei.

Evrópuumræðunni er lokið eftir tuttugu ára þjark. Búið er að sækja um aðild, fljótlega taka við aðildarviðræður og að þeim loknum verður samningur lagður fyrir þjóðina. Hann verður samþykktur og Ísland verður hluti af ESB, sennilega 2013.

Dæmigerður íslenskur skotgrafahernaður – stundum misskilinn sem pólitísk umræða – mun halda áfram, flestum til algerra leiðinda. Mikið af fýlubombum á borð við “landráð”, “þjóðníðinga” og “föðurlandssvikara” verður kastað. Þetta verður hvimleitt en lítið við því að gera, nema reyna að leiða það sem mest hjá sér, vona að viðkomandi hafi ekki of mikla verki með þessu og biðja þeim blessunar.

Það er auðvelt að vera andstæðingur ESB. Þeir heitustu hafa hagsmuni sína að verja. Sumir aðrir telja sig verja þjóðarhagsmuni. Þeir munu átta sig flestir. Við suma verður þó ekki tjónkað. Það verður að hafa það.

Erfiðara er að vera eindreginn stuðningsmaður ESB. Til þess er fyrirbrigðið of margslungið, sumt gott, annað síðra. Þegar öllu er á botninn hvolft eru kostirnir þó fleiri og mikilvægari en gallarnir.

Andrés Jónsson telur upp tíu ástæður fyrir því afhverju við eigum að vera í ESB. Þær eru allar góðar en sú allra besta er merkt 10b:

“Af því að okkur ber skylda til að leggja eitthvað af mörkum. Að taka þátt. Af því að við höfum eitthvað fram að færa. Við eigum að ganga hnarreist til liðs við þjóðir Evrópu. Við eigum ekki að koma til borðsins með þrönga sérhagsmuni fyrst og fremst, heldur með okkar sjónarhorn á mannúð, mannlíf og sambúð í þessum heimshluta. Okkar sýn á framtíðina – vonir og væntingar. Við eigum að treysta væntanlegum viðsemjendum okkar til að virða og skilja sögu okkar og menningu. Já og einnig sérstaka hagsmuni okkar. En ekki í formi skilyrða, heldur með samstarfsanda að vopni og á jafningjagrundvelli.”

Ballaða um hnignun bíóhneigðar
Hvernig staðsetur maður íslenskar kvikmyndir í menningu Íslendinga? Hvernig hefur þjóðin innbyrt þær og unnið úr þeim? Eru þær hluti af okkar sjálfsmyndaruppleggi eða standa þær utan við það?

Fyrir þrjátíu sumrum fóru fram upptökur á þremur íslenskum kvikmyndum, Landi og sonum, Óðali feðranna og Veiðiferðinni. Þær höfðu hlotið örlítinn styrk úr nýstofnuðum Kvikmyndasjóði en að öðru leyti höfðu aðstandendur lagt allt undir, eigur sínar og jafnvel ættingja sinna. Myndirnar voru sýndar árið eftir, hlutu gríðarlega aðsókn og byrjað var að tala um íslenska kvikmyndavorið.

Fyrstu þrjú árin eða svo flykktust Íslendingar á íslenskar myndir í massavís og settu ekki fyrir sig að borga tvö- til þrefalt verð. Eftir það dróst aðsóknin saman þó sumar myndir höluðu áfram inn svipaðan fjölda enn um sinn. Það er svo ekki fyrr en á síðustu árum að sambærilegar aðsóknartölur hafa komið aftur – þó hlutfallslega minni ef fólksfjölgun er höfð með í jöfnunni.

Myndirnar sem sýndar voru sumarið 1980 voru ekki fyrstu íslensku bíómyndirnar,t .d. hafði kvikmyndin Morðsaga verið sýnd þremur árum áður og einnig notið mikillar hylli. Þær mörkuðu hinsvegar upphafið að samfellunni í framleiðslu og sýningu íslenskra bíómynda og eru því sterkir viðmiðunarpóstar þegar íslensk kvikmyndasaga er skoðuð; nokkurskonar „fyrir og eftir“.

Fer brátt að sumra?

Fyrir nokkrum árum var ég spurður hvenær íslenska kvikmyndavorinu hefði lokið og sumarið tekið við. Mér varð hugsað til Egils Eðvarðssonar sem eitt sinn sagði í viðtali eitthvað á þá leið að hann vonaði að það færi að brátt að sumra, vorið væri yfirleitt svo fjári langt og kalt. Sjálfur sagðist ég vilja tala um árstíðirnar allar, það hefði bæði haustað og vorað margoft frá 1980 og það hefðu verið kaldir vetrar en stundum sumartíð. Hugtakið „íslenska kvikmyndavorið“ nær því fyrst og fremst að lýsa þeim anda sem ríkti á upphafsárunum; fólki sem lagði af stað í óvissuferð með bjartsýni að vopni og kaus dálítið að horfa framhjá því að þetta var varla hægt.

Hugtakið vekur einnig hugrenningatengsl við þær hræringar sem orðið höfðu í kvikmyndagerð Evrópu og víðar frá lokum sjötta áratugarins. Fyrir tilstilli manna á borð við Truffaut, Godard, Fellini, Antonioni, Bergman, Kurosawa og margra fleirri, varð sú hugmynd ríkjandi að kvikmyndaleikstjórar – fyrst og fremst þeir sem töldust höfundar eða auteurs – væru nokkurskonar sjáendur eða spámenn og að kvikmyndirnar hefðu beint og brýnt erindi við samtíma sinn. Við upphaf níunda áratugarins stóðu eftirskjálftar frönsku nýbylgjunnar enn og margir höfðu komið í kjölfarið; Bretar áttu frjótt tímabil á sjöunda áratugnum, Tékkar sömuleiðis, í Svíþjóð var ýmislegt að gerast og bæði Pólverjar og Þjóðverjar stigu eftirminnilega inn á sviðið á þeim áttunda. Nokkur fjöldi leikstjóra af öðrum þjóðernum tók einnig regluleg sóló og síðast en ekki síst höfðu þessar hræringar náð til Bandaríkjanna; margar mynda þeirra frá ofanverðum sjöunda áratugnum og langt fram á þann áttunda báru sterkan keim af þeim straumum sem léku um evrópska kvikmyndagerð. Þetta var hinsvegar allt að breytast og meira afgerandi en marga hugði.

Hnignun bíóhneigðarinnar

Í þessu andrúmslofti mótuðust hinir íslensku leikstjórar upphafsáranna. Þeir höfðu flestir sótt menntun sína til ýmissa landa Evrópu allt frá sjöunda áratugnum – og/eða lagst flatir fyrir bíóhneigðinni (cinephilia) eins og til dæmis Friðrik Þór. Bíóhneigðin er afar mikilvæg í þessu sambandi. Sú hugmynd að kvikmyndin næði utan um allt kom frá hinum bíóhneigðu, því fólki sem hafði þá djúpu sannfæringu að „kvikmyndin væri listform ólíkt öllum öðrum: afar nútímalegt; sérlega aðgengilegt; ljóðrænt, dularfullt, erótískt og siðferðilegt – allt í senn“ svo vitnað sé til orða Susan Sontag í hinni frægu grein hennar Century of Cinema frá 1995, þar sem hún harmar hnignun bíóhneigðarinnar og þar með kvikmyndanna.

Já, hnignun. Um og uppúr 1980, þegar við byrjum fyrir alvöru að gera myndir, voru þessar hugmyndir á hægu en öruggu undanhaldi. Öld blokkböstera var runnin upp og með þeim krafan um skemmtigildi umfram listræna sýn. Vissulega hafa þessi sjónarmið ávallt skarast mjög þegar kvikmyndin er annarsvegar, enda stundum snúið að aðgreina þau með skýrum hætti. Það þykir allavega ekki móðins á síðari tímum þar sem hugtökin hámenning og lágmenning hafa verið afbyggð og gerð að einhverskonar merkingarleysu.

Kallið mig snobb en innst inni er ég dálítið leiður á þessari afstæðishyggju. Ég hef ekkert á móti afþreyingarmyndum, nýt þeirra oft sjálfur. En án forsendunnar um að kvikmyndin sé listform sem eigi áríðandi erindi við það sem býr innra með manninum, veslast hún upp líkt og líkami án hreyfingar. Sé kvikmyndarinnar fyrst og fremst „neytt“ sem hverrar annarrar vöru, er hún harla lítils virði. Ef ekki er til virkur hópur kvikmyndaunnenda (bíóhneigðra – hann þarf ekki að vera stór) fjarar smám saman undan þessum hugmyndum.

Áhersla á ytri þætti

Það er reyndar nákvæmlega það sem hefur verið að gerast, hér sem annarsstaðar. Bíóhneigðin hefur færst útí jaðarinn, hún þykir í dag vettvangur dálítið snobbaðra og gamaldags sérvitringa sem jafnvel séu haldnir þeim grillum að kvikmyndasagan skipti einhverju máli. Stundum er hún meira að segja talin vera þessi nördagangur sem tíðkast hjá sumum gagnvart græjum, útliti og attitjúdi goðsagnafroðunnar sem Hollywood spýtir markvisst útúr sér með reglulegu millibili. Já jæja, ég er ósammála. Þetta er langtímasjónarmið. Prinsipp. Sólin rís, vindurinn blæs og guðirnir hreyfa mennina…

Semsagt; íslenskar kvikmyndir hafa „alist upp“ í umhverfi þar sem áherslur hafa sífellt meira færst til ytri þátta; aðsóknartalna, fjármögnunar, viðurkenninga, umfangs verkefna og fjölmiðlaframkomu. Á sama tíma hafa innri þættir verið vanræktir; umræður og átök um aðferðir og nálgun, fagurfræði, erindi og innihald. Ekki bætir úr skák sú algenga tilhneiging þeirra sem gagnrýna íslenskar myndir að fara um þær silkihönskum og hlaða þær oflofi  – nú eða sturta yfir þær stórkallalegum svívirðingum.  Þetta er dálítið grýttur jarðvegur fyrir hið skapandi ferli, enda er að finna í alltof mörgum okkar mynda fræ ágætra hugmynda sem ná svo ekki að blómstra. Ferli tilrauna, mistaka og endurbóta rennur of oft útí sandinn. Markvissara aðhald og dýnamískari togstreitu vantar (já ég veit, það vantar meiri pening líka).

Þetta er reyndar ekki séríslensk þróun, heldur almenn. Það breytir þó ekki því að við þurfum að glíma við stöðuna eins og hún birtist hér. Við höfum verið alveg sérstaklega sinnulítil um ræktun bíóhneigðar á þessum tíma. Bíóhneigða má vissulega finna hér en þeir eru fáir og langt á milli þeirra. Þeir eiga sér ekki samfélag nema afar takmarkað og tilviljanakennt. Gerjun samræðu um kvikmyndir, átök og fjölbreytni í skoðanaskiptum um þær markast auðvitað af þessu. Ég veit allt um það, ég er einn þeirra. Yfirleitt verð ég undrandi (en glaður) þegar ég hitti einn slíkan. Öfugt við það sem mætti ætla er til dæmis ekkert mjög marga þeirra að finna innan kvikmyndabransans. Hversvegna ekki?

Menningarlegt slys

Bíóhneigðir hafa varla haft vettvang síðan Friðrik Þór rak Fjalaköttinn og Háskólabíó bauð uppá mánudagsmyndir. Það var á áttunda áratug síðustu aldar. Kynslóðir hafa vaxið úr grasi síðan þá, með afar takmarkaða möguleika til að rækta með sér bíóhneigð. Við höfum ekki haft Cinematek og kvikmyndahúsin hafa að mestu leyti einbeitt sér að Hollywood. Þau reyna stundum að sýna lit en kvarta síðan yfir lítilli uppskeru. Er það nokkuð að undra þegar gleymst hefur að vökva beðið? Það segir sína sögu að vinjar íslenskra kvikmyndaunnenda eru tvær til þrjár vídeóleigur með vott af metnaði og ein bíóbúð í miðbænum, auk kvikmyndahátíðar sem nú er sem betur fer unnin af alúð eftir mörg mögur ár.

Okkur hefur vissulega tekist að búa til athyglisverðar myndir – kannski þrátt fyrir þennan grýtta svörð. Sumar þeirra hafa notið mikillar lýðhylli. Þó fær maður stundum ekki varist þeirri tilfinningu að þær hafi farið inn um annað og út um hitt. Hafa þær orðið hluti af því lexikoni sem við notum til að skilgreina okkur? Er ekki leikurinn á vissan hátt til þess gerður? Svari lesandi fyrir sig.

Þá má nefna verk sem farið hafa hjá garði en þó verðskuldað meiri athygli og íhygli. Myndir Kristínar Jóhannesdóttur, Á hjara veraldar og Svo á jörðu sem á himni, koma fyrst uppí hugann. Vissulega ekki gallalaus verk en bera með sér listrænan kjark; vogaðar tilraunir með miðilinn og möguleika hans. Ég vil ganga svo langt að fullyrða að það sé menningarlegt slys að Kristínu hafi ekki auðnast að gera fleiri myndir, ég tel hana hafa verið í hópi framsæknari leikstjóra Evrópu á sínum tíma.

Ný tegund bíó-ástar

Svo eru það áhrif utanaðkomandi upphefðar á aðsókn. Börn náttúrunnar eftir Friðrik Þór vakti litla athygli hér þar til Óskarstilnefning kom til sögu, um hálfu ári eftir frumsýningu. Löngu áður hafði Hrafn Gunnlaugsson sýnt Hrafninn flýgur við litla aðsókn. Árið eftir fékk hún lof og prís í Svíþjóð og fór aftur í sýningar hér. Þá gekk mun betur. Nói albínói eftir Dag Kára norpaði í bíósölum lengi fram eftir, en náði að lokum að hala inn tæplega tuttugu þúsund manns eftir sigurför á erlendum hátíðum með tilheyrandi fjölmiðlaumfjöllun. Urðu þessar góðu myndir á einhvern hátt betri eftir utanfarir sínar?

Fleiri dæmi mætti nefna, en einhver kann að spyrja hvort þetta sé eitthvað verra hér en annarsstaðar. Er til dæmis hægt annað en að vera sáttur með áhuga íslenskra áhorfenda á innlendum myndum þegar horft er til lengri tíma? Aðsóknartölur síðastliðin þrettán ár sýna að íslensk mynd fær að meðaltali um 18.000 gesti, eða um 6% þjóðarinnar. Slík meðaltalsaðsókn þekkist óvíða annarsstaðar. Hún felur þó þær geysilegu sveiflur sem eru í aðsókn á einstakar myndir; aðsóknarbilið er allt frá nokkur hundruð manns á eina mynd uppí tæplega 90.000 á aðra.

En vangaveltur mínar snúast ekki um þetta atriði. Við erum ein mesta bíóþjóð í heimi þegar horft er til fjölda bíóheimsókna á mann á ári. Við höfum verið það áratugum saman. En við gerum einhvernveginn lítið við það. Kannski sakna ég einhvers sem aldrei var. Einhverskonar samfélags bíóhneigðra sem sér, meltir, greinir og tjáir sig. Einhverskonar baklands íslenskra kvikmynda, því það að gera myndir og það að horfa á þær og upplifa þær er aðeins sitthvor hliðin á sama peningnum.

Susan Sontag lýsir þessu vel í niðurlagi áðurnefndrar greinar sinnar:  „Ef bíóhneigð er dauð eru kvikmyndirnar dauðar líka… og skiptir þá engu máli hversu margar myndir, jafnvel mjög góðar, verða gerðar áfram. Ef kvikmyndin á að rísa upp aftur mun það aðeins gerast í gegnum fæðingu nýrrar tegundar af bíó-ást.”

Höfundur hefur gert og fjallað um kvikmyndir í yfir þrjátíu ár. Hann er bíóhneigður.

(skrifað fyrir Lesbók Morgunblaðsins 11. júlí 2009).

Mynd dagsins: Medea eftir Lars von Trier
1988 sýndi Sjónvarpið 75 mínútna langa sjónvarpsmynd eftir þá tiltölulega lítt þekktan leikstjóra, Lars von Trier. Myndin; Medea eftir harmleik Evripídesar, var byggð á handriti meistarans Carl Th. Dreyer sem hann hafði skrifað á sjöunda áratugnum en aldrei lánast að fjármagna. Skemmst er frá því að segja að hún hafði sterk áhrif á mig og er satt að segja sú mynda von Triers sem ég held mest uppá enn í dag. Sagan er sett fram með afar spartönskum hætti, myndmálið er expressionískt í anda eldri mynda Dreyers og áferðin er kapítuli útaf fyrir sig. Von Trier mun hafa myndað hana upphaflega á U-matic, hið gleymda trekvart tommu vídeóformat, en síðan fært hana á filmu með því að filma hana beint af sjónvarpsskjá (segir sagan). Útkoman er afar sérstök, draumkennd og loðin. Þá var og eftirminnilegt að von Trier lætur leikarana hvíslast á mest allan tímann, alveg óháð fjarlægðinni milli þeirra. Fyrstu átta mínúturnar má sjá hér: