Ásgrímur Kristján Sverrisson

Entries categorized as ‘Tilveran’

Mynd dagsins: Hlustum á Bretland

föstudagur, 7 ágúst 2009 · Rita ummæli

Var að komast yfir eintak af Listen to Britain, þessari dásamlegu heimildamynd Humphrey Jennings frá stríðsárunum. Á disknum eru einnig nokkrar aðrar myndir eftir þennan snilling, Fires Were Started, London, Can Take It, Words for Battle, A Diary for Timothy og Family Portrait. Hef ekki séð þær en sú fyrstnefnda er einhver sú fallegasta mynd sem gerð hefur verið.

Berið hana svo saman við annað snilldarverk eftir annan ljóðrænan meistara breskan. Hér er brot úr Distant Voices Still Lives eftir Terence Davies.

Flokkar: Tilveran

Astraltertugubb á Austurvelli

miðvikudagur, 21 janúar 2009 · Rita ummæli

Skrapp niðrá Austurvöll um sjöleytið til að tékká stemmningunni. Alþingishúsið var þakið bleikum slettum, óeirðalöggur stóðu keikar við framhlið hússins, eldar loguðu hjá styttu Jóns Sigurðssonar, hverskyns bumbur barðar. Spenna í loftinu en samt allt með frekar kyrrum kjörum.

Var með myndavélina með mér en gleymdi batteríinu. Um svona uppákomu hefur verið ort:

“Við hefðum tekið myndir en höfðum engan kubb,
sönnunargagnið er astraltertugubb.”

Flokkar: Tilveran

State of the Union við áramót 08/09

laugardagur, 17 janúar 2009 · Rita ummæli

gonguklubbur_grims_cropped_09

Við áramótin höfum við félagarnir í Gönguklúbbi Gríms tekið stöðuna fyrir framan Þjóðkirkjuna í Hafnarfirði, þaðan sem við leggjum upp á hverjum laugardegi. Þessi mynd var tekin í morgun. Frá vinstri: Úlfur Gronvold, Hallur Helgason, Dagur Hilmarsson, Davíð Þór Jónsson, Pétur Óskarsson, Óskar Pétursson (sérstakur gestur) og Ásgrímur Sverrisson. Bergur Ólafsson var í Norge og Kári Eiríksson var enn að jafna sig eftir stórkostlega tónleika Bardúkkna í gærkvöldi…

Hér er svo smá syrpa frá því í dag…

Eldri stöðumyndir af hópnum má sjá með því að smella á “taggið” Gönguklúbburinn Grímur hér fyrir neðan.

Flokkar: Tilveran
Tagged:

Undur og ævintýr

þriðjudagur, 11 nóvember 2008 · 2 Ummæli

Undur og ævintýr þessa hausts eru svo mörg að maður veit varla sitt rjúkandi ráð. Það nýjasta er að svo virðist sem bréf íslenskra stjórnvalda til IMF sé týnt og forsætisráðherra er alveg steinhissa, jafnvel meira en þegar hann heyrði frá blaðamönnum að Pólverjar ætluðu að lána okkur pening óumbeðnir. Þá hefur Wall Street Journal eftir finnska forsætisráðuneytinu að Íslendingar hafi enn ekki lagt fram skýr plön um endurreisn og því geti Norðurlandaþjóðirnar ekki ákveðið sig varðandi stuðning. Ekki hefur enn komið fram hvort forsætisráðherra sé líka hissa á þessu.

Hvernig er hægt að halda svona áfram? (meira…)

Flokkar: Kvikmyndir · Pólitík · Tilveran · ísland

Mörg álit – lítil greining

miðvikudagur, 9 apríl 2008 · 1 ummæli

Ég skil ekki alveg hversvegna það þarf að vera Financial Times sem fyrstur fjölmiðla – að mér vitandi – birtir hina fróðlegu frásögn um fund nokkurra stjórnenda vogunarsjóða á 101 Reykjavík í janúar s.l. Hvar voru íslenskir fjölmiðlar? Sér í lagi ef það er rétt sem FT segir, að þessi saga hafi gengið manna á milli í íslenska fjármálaheiminum síðustu mánuði. Er ekki eðlilegt að ætla að þeir blaðamenn íslenskir sem hafa sérhæft sig í fréttum úr fjármálaheiminum hefðu fengið veður af þessari sögu? Hafa þeir kannski vitað um hana en þagað? Eða hafa þeir bara verið útá túni og láta nú FT taka sig í bólinu? (meira…)

Flokkar: Fjölmiðlar · Tilveran · ísland

Gönguklúbburinn Grímur áramót 07/08

laugardagur, 29 desember 2007 · 1 ummæli

Gönguklúbburinn Gr�mur áramót 07/08

Svona er staðan á gönguklúbbnum um áramót 07/08. Frá vinstri: Pétur Óskarsson, Kári Eiríksson, Úlfur Gronvold, Bergur Ólafsson, Hallur Helgason og Ásgrímur Sverrisson. Davíð Þór Jónsson var fjarverandi.

Staðan 2006 er hér.

Staðan 2005 er hér.

Góðar stundir.

Flokkar: Tilveran
Tagged:

Framtíðin er hér

þriðjudagur, 9 janúar 2007 · 1 ummæli

Introducing iPhone

En getur hún hellt uppá gott kaffi?

Flokkar: Tilveran

Útí Eyjum

miðvikudagur, 3 janúar 2007 · Rita ummæli

vestmannaeyjar 1…bjó Einar kaldi, er hann hér enn? Eins og segir í kvæðinu. En annars gerðist sú skemmtilega uppákoma að öðlingurinn Páll Steingrímsson kvikmyndagerðarmaður bauð okkur feðginum útí Eyjar á næstsíðasta degi ársins. Við þáðum með þökkum enda aldrei í Eyjar komið – hvorugt okkar! Páll var að sýna sínu heimafólki mynd sem hann hafði gert um ginklofa, skelfilegan hrörnunarsjúkdóm sem herjaði m.a. á Vestmannaeyinga og íbúa St. Kildu langt fram á 20. öldina. (meira…)

Flokkar: Tilveran

Áramótaganga

Sunnudagur, 31 desember 2006 · 1 ummæli

Gönguklúbbur Gr�ms 30.12.06

Við félagarnir í Gönguklúbbi Gríms tókum stöðuna við áramót í gær. Ljóst er að meðlimir ganga glaðir mót nýju ári og nýjum tækifærum. Davíð Þór og Hallur voru fjarverandi en báðu að heilsa. Ástand okkar fyrir ári síðan má sjá hér (skrunið neðarlega á síðu).

Flokkar: Tilveran
Tagged:

Útlönd, Ásgrímska og eðli alls sem er

þriðjudagur, 24 október 2006 · 2 Ummæli

Göngufélagið 31.12.2005

Gönguklúbbur Gríms á gamlársdag 2005.

 Mér þykir Davíð Þór vinur minn gera mér óþarflega hátt undir höfði í pistli á bloggi sínu þar sem hann segir ágæta öpunarkenningu sína lúta í duftið gagnvart því sem hann kallar “Ásgrímsku”. Kenninguna hafði ég viðrað í léttu spjalli okkar félaga á Súfistanum um daginn, eftir eina af okkar vikulegu kraftgöngum í Hafnarfirði, en hún gengur í stuttu máli útá það að ekkert er til nema það sem þú sérð eða skynjar á annan hátt hverju sinni (sjá frekari útleggingar í pistli Davíðs). Þó að ég sverji af mér djúpa trúarlega sannfæringu í þessum efnum fylgir öllu gamni nokkur alvara og þykist ég skynja að gestir á síðu Davíðs komi auga á þetta, enda bæði búnir að blanda Schopenhauer og The Matrix í málið. Takk fyrir félagsskapinn segi ég en vil þó benda á uppruna kenningarinnar ef það skyldi verða einhverjum til fróðleiks og skemmtunar. (meira…)

Flokkar: Tilveran
Tagged:

Dagur í Nexö

föstudagur, 2 júní 2006 · 2 Ummæli

IMG_2697_2_1
Við Friðrik Erlingsson dveljum þessa dagana í Svaneke á Borgundarhólmi þar sem fram fer North By Northwest handritavinnustofan. Þetta er afskaplega huggulegur bær með haug af gömlum og sætum húsum. Næsti bær við Svaneke er Nexö, heimabær danska stórskáldsins Martin Andersen Nexö, sem m.a. skrifaði Pelle sigurvegara og Dittu mannsbarn. Við félagarnir heimsóttum hús skáldsins, sem nú er safn, en vorum 20 mínútum of seinir… tókum samt þessa mynd af okkur í góðum félagsskap.

Flokkar: Tilveran

Tregasöngur um Sylvíu

laugardagur, 20 maí 2006 · Rita ummæli

Huldusveitin Miðaldra menn frá Hofsósi gaf nýlega út þetta ágæta lag með nýjum texta þar sem Næturdrottningin er hyllt. Í ljósi nýjustu atburða hefur lagið tekið á sig þessa einu sönnu tregastemmningu.

Flokkar: Tilveran

Exit, stage left

fimmtudagur, 18 maí 2006 · Rita ummæli

Flúinn er dvergur, dáin hamratröll, dauft er í sveitum, hnípin þjóð í vanda; en lágum hlífir hulinn verndarkraftur, hólmanum, þar sem Sylvía sneri aftur. Já, hún er horfin, þetta er búið og eftir stöndum við, dauðlegar verur. Sumir segja að hún hafi þegar haldið á Ólympsfjall. Aðrir að hún hafi farið til Hollywood. Orðrómur er á kreiki um dularfullt hús á Hofsósi. Allt um það. The rest as they say… is history.

Flokkar: Tilveran

Hvað sagði ég ekki?

miðvikudagur, 17 maí 2006 · Rita ummæli

Aftur. Þetta snýst ekki um meint guðlast. Bara góðar myndir. Sjá Variety.

Flokkar: Kvikmyndir · Tilveran

Michael Billington glaður með íslenskt leikhús

þriðjudagur, 16 maí 2006 · Rita ummæli

Rakst á þetta blogg frá Michael Billington, leikhúsgagnrýnanda The Guardian, þar sem hann talar fjálglega um Pétur Gaut Baltasars, Fagnað Stefáns Jónssonar og íslenskt leikhús almennt. Svo var hann líka ánægður með landslagið…

Flokkar: Tilveran