Ásgrímur Kristján Sverrisson

Entries categorized as ‘Pólitík’

Evrópuumræðunni er lokið

föstudagur, 17 júlí 2009 · Rita ummæli

Æ nei.

Æ nei.

Evrópuumræðunni er lokið eftir tuttugu ára þjark. Búið er að sækja um aðild, fljótlega taka við aðildarviðræður og að þeim loknum verður samningur lagður fyrir þjóðina. Hann verður samþykktur og Ísland verður hluti af ESB, sennilega 2013.

Dæmigerður íslenskur skotgrafahernaður – stundum misskilinn sem pólitísk umræða – mun halda áfram, flestum til algerra leiðinda. Mikið af fýlubombum á borð við “landráð”, “þjóðníðinga” og “föðurlandssvikara” verður kastað. Þetta verður hvimleitt en lítið við því að gera, nema reyna að leiða það sem mest hjá sér, vona að viðkomandi hafi ekki of mikla verki með þessu og biðja þeim blessunar.

Það er auðvelt að vera andstæðingur ESB. Þeir heitustu hafa hagsmuni sína að verja. Sumir aðrir telja sig verja þjóðarhagsmuni. Þeir munu átta sig flestir. Við suma verður þó ekki tjónkað. Það verður að hafa það.

Erfiðara er að vera eindreginn stuðningsmaður ESB. Til þess er fyrirbrigðið of margslungið, sumt gott, annað síðra. Þegar öllu er á botninn hvolft eru kostirnir þó fleiri og mikilvægari en gallarnir.

Andrés Jónsson telur upp tíu ástæður fyrir því afhverju við eigum að vera í ESB. Þær eru allar góðar en sú allra besta er merkt 10b:

“Af því að okkur ber skylda til að leggja eitthvað af mörkum. Að taka þátt. Af því að við höfum eitthvað fram að færa. Við eigum að ganga hnarreist til liðs við þjóðir Evrópu. Við eigum ekki að koma til borðsins með þrönga sérhagsmuni fyrst og fremst, heldur með okkar sjónarhorn á mannúð, mannlíf og sambúð í þessum heimshluta. Okkar sýn á framtíðina – vonir og væntingar. Við eigum að treysta væntanlegum viðsemjendum okkar til að virða og skilja sögu okkar og menningu. Já og einnig sérstaka hagsmuni okkar. En ekki í formi skilyrða, heldur með samstarfsanda að vopni og á jafningjagrundvelli.”

Flokkar: Pólitík

Íslenski draumurinn

fimmtudagur, 18 júní 2009 · Rita ummæli

Það var vel til fundið hjá Sjónvarpinu í gær, 17. júní, að endursýna Íslenska drauminn eftir Róbert Douglas. Þjóðhátíðardagurinn er (að nafninu til) dagur þjóðarsjálfsmyndarinnar og Íslenski draumurinn er miskunnarlaus gegnumlýsing hins íslenska hugarfars. Myndin eldist vel meðal annars vegna þess að hún verður æ sannari eftir því sem frá líður.

Tóti er víða. Væri gerð um hann mynd í dag myndi hann starfa í banka eða í útrásinni. Sagan væri nokkurnveginn eins, sögusviðið pínulítið öðruvísi (flottari dekor, betri bílar…). Og hún gæti til dæmis endað svona:

holmatun

Flokkar: Kvikmyndir · Pólitík · Sjónvarp

Hvað vakir fyrir Jóni Kaldal?

miðvikudagur, 17 júní 2009 · 6 Ummæli

Hvað vakir fyrir Jóni Kaldal, ritstjóra Fréttablaðsins? Hann talar um að minnka þurfi tortryggni í samfélaginu og sakar Evu Joly um að auka á hana.

Evu Joly?

Skyldu vera einhverjir aðrir en Eva Joly að mati Jóns Kaldal sem hafa skapað tortryggni í samfélaginu? Og hvernig nákvæmlega á að draga úr þessari tortryggni þegar nær allt traust á pólitíkusum og viðskiptajöfrum er horfið? Telur hann að hægt sé að auka traustið með einhverju öðru en að láta verkin tala? Eru kannski einhverjir sérstakir spunameistarar sem hann vill að við förum að trúa á?

http://visir.is/article/20090617/SKODANIR/700024652

Flokkar: Pólitík

Nixon og Jóhanna?

fimmtudagur, 19 febrúar 2009 · Rita ummæli

"Ríkið, það er ég".

"Ríkið, það er ég".

Af vef Björns Bjarnasonar, þingmanns og kvikmyndaunnanda:

“Kvikmyndin Ford/Nixon ætti að höfða til allra, sem hafa áhuga á stjórnmálum eða svonefndum drottingarviðtölum í sjónvarpi. Hún er vel gerð í alla staði, enda hefur hún verið tilnefnd til fimm Óskarsverðlauna. Hún snýst meðal annars um efni, sem er ofarlega í huga margra hér á landi um þessar mundir, hvernig stjórnmálamenn horfast í augu við eigin gerðir og axla ábyrgð. (…)

Orðaskipti þeirra Frosts og Nixons um virðingu fyrir lögunum voru í svipuðum dúr og orðaskipti þeirra Helga Seljans og Jóhönnu Sigurðardóttur í Kastljósi á dögunum, þegar hún talaði eins og tilgangur sinn helgaði meðalið og engu skipti, þótt dómari teldi aðferð hennar lögbrot – hún hefði víst átt að gera þetta eins og hún gerði.”

Ókei… en svona í ljósi yfirstandandi hamfara og ferils tveggja síðustu ríkisstjórna; er þetta nú örugglega besta samlíkingin kæri Björn?

Svo rakst ég á þetta skemmtilega komment annarsstaðar:

“Ég vil frumvarp um persónukjör, „og ég skal heita því að í næstu kosningum fer mitt allkvæði“ (sic) til þess flokks sem berst fyrir því að persónukjör verði tekið upp.”

Flokkar: Kvikmyndir · Pólitík

John Wayne biðst ekki afsökunar

föstudagur, 13 febrúar 2009 · Rita ummæli

Ég leitaði blárra blóma...

“Never apologize. It’s a sign of weakness.”

- Nathan Brittles (John Wayne) í She Wore a Yellow Ribbon (John Ford, 1949).

Þetta rifjaðist allt í einu upp.

Myndin er dásemd. Stiklan er hér.

Flokkar: Kvikmyndir · Pólitík

Hið sögulega tækifæri Jóhönnu og Steingríms

laugardagur, 31 janúar 2009 · Rita ummæli

Lukkulegt par.

Lukkulegt par.

Um leið og ný ríkisstjórn tekur við völdum standa leiðtogar hennar, gömlu stríðsjálkarnir Jóhanna og Steingrímur, frammi fyrir einstöku tækifæri til að komast í sögubækurnar. Þau eiga einfaldlega að lýsa því yfir að þau muni aðeins sitja fram að vorkosningum og hætta síðan í pólitík.

Með þessu vinnst þrennt. (meira…)

Flokkar: Pólitík

Hönd á plóginn

Sunnudagur, 25 janúar 2009 · 1 ummæli

plogur

Áfram Ísland.

Ég vil óska þeim Geir Haarde og Ingibjörgu Sólrúnu alls hins besta og vona að þau nái sér sem fyrst af veikindum sínum. Um leið óska ég eftir stjórnmálamönnum með sýn; körlum og konum sem skilja nauðsyn þess að íslenskt samfélag þarf að taka nýjan kúrs og það strax í gær.

Og hvaða kúrs er það? Í rauninni liggur svarið innra með okkur öllum. Við þurfum ekki að vera sammála um alla hluti, en við hljótum að þurfa að sammælast um samfélag sem leitar jafnvægis mótvægisafla, heilbrigðrar togstreitu milli einstaklingsfrelsis og samhjálpar, samfélags þar sem stjórnvöld viðurkenna mikilvægi fjölbreyttra hugmynda og forðast einsleitni.

Heimurinn stefnir í kreppu. Í grunninn er það vegna of mikillar hugmyndalegrar einsleitni; þeirrar hugmyndar að fjármagninu eigi að sleppa lausu án frekari afskipta.  Gallar þeirrar hugmyndar hafa komið áþreifanlega í ljós. Það þýðir þó engan veginn að afneita eigi frjálsum markaði – þvert á móti hljóta raunverulegt viðskiptafrelsi og raunveruleg frjáls samkeppni að vera meðal lykilatriða fúnkerandi samfélags. En það segir okkur – enn einu sinni – að forðast beri ofríki einsleitrar hugmyndafræði, hverju nafni sem hún nefnist.

Okkar vandamál eru jafnvel ýktari vegna þess forna kerfis sérhagsmuna, valdasamþjöppunar og kunningja-hyglunar sem kæft hefur eðlilega og frjálsa samkeppni um bestu hugmyndirnar og besta fólkið. Tilhneigingin til einsleitni, valdaþjöppunar og fákeppni er okkar versti óvinur.

Framkvæmd hinnar íslensku einkavæðingar – eins þörf og hún var – hefur misheppnast herfilega. Ekki mun duga að lappa uppá kerfið, það þarf að núllstilla og byrja uppá nýtt á forsendum almannahagsmuna. Það er mannlegt að ríghalda í afneitunina, troða marvaðann í von um kraftaverk, reyna að bjarga einhverju úr rústunum. En nú er nóg komið. Kosningar einar og sér munu ekki leysa vandann.

Stjórnlagaþing og endurnýjun stjórnarskrár er fyrsti áfanginn að nýja Íslandi; samfélagi sem trúir á samspil mótvægra krafta og hið skapandi ferli tilrauna, mistaka og endurbóta.

Við þurfum opið samfélag með ákveðnu grunn öryggisneti, þar sem skýrar leikreglur hvetja til sköpunar og frumkvæðis; samfélag sem deilir ekki endilega sameiginlegri pólitískri sýn, en skilur mikilvægi flókinna þróunarferla á borð við vísindarannsóknir, samkeppni, listræna tjáningu og tækniuppgötvanir; samfélag sem skilur að útkoman er ekki fyrirfram gefin, en um leið undir okkur komin.

Ég held að fólk með þessi viðhorf sé að finna í öllum flokkum og mjög víða út um allt samfélagið. Það má þekkja það á því að það óttast ekki framtíðina og getur ekki beðið eftir að fá að leggja hönd á plóg.

Flokkar: Pólitík · ísland

Sigmundur vs. Obama

þriðjudagur, 20 janúar 2009 · Rita ummæli

Glæstar vonir.

Glæstar vonir.

Í dag tekur Barack Obama við embætti forseta Bandaríkjanna. Á þessum efnilega manni hvíla væntingar af tröllaukinni stærðargráðu. Hann er nokkurnveginn nýkominn af götunni en honum er ekki aðeins ætlað að leiða áttavillta þjóð frá villu síns vegar; vegna aðstæðna hvílir einnig á honum sú krafa að verða eitt af stærstu nöfnunum í sögu embættisins.  Á sama tíma blasa við honum vandamál af áður óþekktri stærðargráðu. Verður hann maðurinn sem hefur Ameríku til vegs og virðingar á ný (og þá meina ég síst af öllu það sem populistinn Reagan sagði: “Let’s make America great again” – sjáið nú hvert sú snjalla hugmynd hefur leitt þá), eða sá sem fær það hlutverk að stýra endalokum stórveldisins?

Hver vegur frá Hriflu...

Hver vegur frá Hriflu...

S.l. sunnudag tók Sigmundur Davíð Gunnlaugsson við embætti formanns Framsóknarflokksins. Á þessum efnilega manni hvíla væntingar af tröllaukinni stærðargráðu. Hann er nokkurnveginn nýkominn af götunni en honum er ekki aðeins ætlað að leiða áttavilltan flokk frá villu síns vegar; vegna þess að hann er nýr, ferskur og kemur vel fyrir, þarf hann skjótlega að sanna fyrir þjóðinni allri að hann ætli ekki í gamla framsóknarfarið, heldur starfa með almannahagsmuni að leiðarljósi. Óhætt er að segja að við honum blasi vandamál af áður óþekktri stærðargráðu. Verður hann maðurinn sem hefur Framsóknarflokkinn til vegs og virðingar (raunverulega) eða sá sem fær það hlutverk að stýra endalokum þessa fyrrum stórveldis?

Það verður afar forvitnilegt að fylgjast með Obama. En það verður líka forvitnilegt að sjá Sigmund láta til sín taka. Þetta er í fyrsta skipti í okkar stjórnmálasögu sem lítt þekktur maður án pólitískrar reynslu verður formaður stjórnmálaflokks og það næstum uppúr þurru. Þetta verður eldskírn; hann mun ekki fá langan tíma til að sanna sig. Slíkir eru tímarnir.

Í gegnum fjölskyldutengsl, fréttamennsku og menntun sína hefur hann væntanlega fengið nasasjón af pólitíkinni. Ég skynja hjá honum ástríðu, metnað og löngun til að gera gagn. En hans bíða einnig pyttir hálfsannleikans, spunans, paranojunnar, baktjaldamakksins, málamiðlananna, vonbrigðanna, hrossakaupanna, populismans, persónulegu árásanna og  hnífsstungnanna.

...er vegurinn heim.

...er vegurinn heim.

Í heimildarmynd minni um Jónas frá Hriflu, Sjö sverð á lofti í senn, sem ég gerði ásamt Elíasi Snæland fyrir Sjónvarpið 1989, minntist Albert Guðmundsson fundar þeirra á Hótel Sögu, skömmu fyrir andlát Jónasar. Hann var eitthvað niðurdreginn og þegar Albert innti hann eftir því, svaraði Jónas:

“Sá einn er sekur sem tapar.”

Flokkar: Pólitík

Hvað fer næst?

mánudagur, 19 janúar 2009 · Rita ummæli

Eitt sinn þegar vinur minn Davíð Þór Jónsson ók framhjá yfirgefinni byggingu Íshúss Hafnarfjarðar datt uppúr honum þessi ódauðlega vísa:

Eitt sinn stóð hér íshús,
hvað fer næst?
Djísús.
Kræst.

Ég held að Bretland fari næst. Sjá Will Hutton.

Flokkar: Pólitík

Sigmundur Davíð: réttur maður á réttum tíma, en ekki endilega á réttum stað

mánudagur, 19 janúar 2009 · 5 Ummæli

Réttur maður á röngum stað?

Réttur maður á röngum stað?

Líst ljómandi vel á Sigmund Davíð Gunnlaugsson. Hann þarf reyndar að ákveða sig með ESB en þetta er greindur maður með ferskar hugmyndir. Réttur maður á réttum tíma. En kannski ekki endilega á réttum stað. Framsóknarflokkurinn er afar einkennileg skepna, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Skil ekki alveg afhverju maður af hans kaliberi velur þann vettvang til að stíga inná sviðið – nema þá að um pólitíska tækifærismennsku sé að ræða. Held reyndar – og vona – ekki. Þá bíður hans hinsvegar gríðarlegt starf við að moka útúr því fjósinu.

Sigmundur var sérlega fínn fréttaþulur, solid “anchor material”, með trausta áru og yfirbragð auk þess að kunna að grípa augnablikið og svo hefur hann fínan húmor. Á undanförnum árum hefur hann svo talað eins og útúr mínu hjarta um skipulagsmál, þennan málaflokk sem er næstum óendanlega mikilvægur en Íslendingar hafa því miður ekki mikinn áhuga á, eins og sést langar leiðir.

Þetta er flott innkoma hjá honum, en hvernig honum gengur að kveða niður nátttröllin í Framsókn og vinna flokknum eitthvað kjörfylgi, á eftir að koma í ljós.

Flokkar: Pólitík

Annað lýðveldið verður sjötta útgáfan af Íslandi

þriðjudagur, 13 janúar 2009 · 2 Ummæli

Hjálpi okkur nú allar góðar vættir.

Hjálpi okkur nú allar góðar vættir.

Nú á efstu dögum lýðveldisins er einboðið að fylkja sér um hugmynd Njarðar P. Njarðvík; stjórnlagaþing og nýja stjórnarskrá, endurreisn Alþingis og gefa allt uppá nýtt. Allt fjas um annað er sem fiðluleikur á brennandi þaki Rómar. Hér hefur hvort eð er lítið breyst í þúsund ár og tími til kominn að þræða aðra slóða.

Þetta yrði þá Ísland 6.o. (meira…)

Flokkar: Pólitík · ísland
Tagged: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,

Enn og aftur: til hvers er RÚV?

laugardagur, 20 desember 2008 · Rita ummæli

Höfuðstöðvar RÚV i Efstaleiti

Vandi þess og vegsemd að vera RÚV.

Þær fregnir bárust í gær að afgreiðslu RÚV-frumvarpsins, þar sem meðal annars stendur til að takmarka auglýsingar, hefur verið frestað fram í febrúar. Það þarf ekki að koma á óvart enda virðist þetta frumvarp frekar vera einhverskonar ósjálfrátt skjálftaviðbragð við aðstæðum á einkamarkaði, heldur en vel grundað plagg um framtíð RÚV – eins mikilvægt og það er. Þó verður afgreiddur sá hluti frumvarpsins sem snýr að nefskattinum, en hann verður innheimtur frá og með 1. janúar n.k. En ýmsum spurningum um fjármögnun og dagskrárstefnu RÚV ohf. er enn ósvarað. Lögin frá 2006 virðast ekki hafa orðið til þess að efla stofnunina til að sinna erindi sínu. Eftir áralangan hallarekstur virðist afkoman hafa versnað enn frekar í kjölfar hlutafélagsvæðingar. Stofnunin rís varla undir skuldum og býr við króníska undirfjármögnun. Við þetta verður ekki búið. (meira…)

Flokkar: Pólitík · Sjónvarp

Undur og ævintýr

þriðjudagur, 11 nóvember 2008 · 2 Ummæli

Undur og ævintýr þessa hausts eru svo mörg að maður veit varla sitt rjúkandi ráð. Það nýjasta er að svo virðist sem bréf íslenskra stjórnvalda til IMF sé týnt og forsætisráðherra er alveg steinhissa, jafnvel meira en þegar hann heyrði frá blaðamönnum að Pólverjar ætluðu að lána okkur pening óumbeðnir. Þá hefur Wall Street Journal eftir finnska forsætisráðuneytinu að Íslendingar hafi enn ekki lagt fram skýr plön um endurreisn og því geti Norðurlandaþjóðirnar ekki ákveðið sig varðandi stuðning. Ekki hefur enn komið fram hvort forsætisráðherra sé líka hissa á þessu.

Hvernig er hægt að halda svona áfram? (meira…)

Flokkar: Kvikmyndir · Pólitík · Tilveran · ísland

Hvar eru fréttaskýringaþættir Sjónvarpsins?

þriðjudagur, 3 júní 2008 · 2 Ummæli

Árni Snævarr deilir á Þórhall Gunnarsson dagskrárstjóra fyrir að vilja ekki kaupa þátt hans um Evrópusambandið og segir hann undir hrammi Flokksins. Þórhallur bendir á að þátturinn sé kostaður af Samtökum iðnaðarins sem hafi beitt sér fyrir inngöngu í ESB og að þátturinn sé frontaður af manni sem sé þeirrar skoðunar að Ísland eigi að drífa sig inn. Ég skoðaði þáttinn (hann má sjá hér) og þetta er ágætlega unnin fréttaskýringaþáttur, þó vissulega megi færa rök fyrir því að sjónarmið andstæðinga aðildar hefðu mátt koma betur fram. Auðvelt hefði verið að laga það. Gallinn er þó sá að hann er kostaður af hlutdrægum aðila og það eitt gerir hann vafasaman á dagskrá Sjónvarpsins. Á móti spyr ég sem almennur sjónvarpsáhorfandi; afhverju í veraldarinnar ósköpum eru þættir á borð við þennan, þar sem tekin eru fyrir knýjandi málefni, ekki gerðir reglulega af Sjónvarpinu sjálfu (hvort heldur innanhúss eða utan)? (meira…)

Flokkar: Pólitík · Sjónvarp

Hugsjónir gegn veruleika

fimmtudagur, 18 október 2007 · Rita ummæli

Ég verð að viðurkenna að ég er svolítið veikur fyrir pólitísku drama úr samtímanum, það er að segja kvikmyndum og sjónvarpsefni sem stökkva til okkar næstum beint af forsíðum blaðanna. Slíkar sögur hafa gjarnan áríðandi yfirbragð, um leið og þær kristalla átök um grundvallarhugmyndir – rétt og rangt – og ekki síst hvernig háleitum hugsjónum farnast í sambúð við kaldan veruleikann. (meira…)

Flokkar: Kvikmyndir · Pólitík · Sjónvarp