Ásgrímur Kristján Sverrisson

Entries categorized as ‘ísland’

Hönd á plóginn

Sunnudagur, 25 janúar 2009 · 1 ummæli

plogur

Áfram Ísland.

Ég vil óska þeim Geir Haarde og Ingibjörgu Sólrúnu alls hins besta og vona að þau nái sér sem fyrst af veikindum sínum. Um leið óska ég eftir stjórnmálamönnum með sýn; körlum og konum sem skilja nauðsyn þess að íslenskt samfélag þarf að taka nýjan kúrs og það strax í gær.

Og hvaða kúrs er það? Í rauninni liggur svarið innra með okkur öllum. Við þurfum ekki að vera sammála um alla hluti, en við hljótum að þurfa að sammælast um samfélag sem leitar jafnvægis mótvægisafla, heilbrigðrar togstreitu milli einstaklingsfrelsis og samhjálpar, samfélags þar sem stjórnvöld viðurkenna mikilvægi fjölbreyttra hugmynda og forðast einsleitni.

Heimurinn stefnir í kreppu. Í grunninn er það vegna of mikillar hugmyndalegrar einsleitni; þeirrar hugmyndar að fjármagninu eigi að sleppa lausu án frekari afskipta.  Gallar þeirrar hugmyndar hafa komið áþreifanlega í ljós. Það þýðir þó engan veginn að afneita eigi frjálsum markaði – þvert á móti hljóta raunverulegt viðskiptafrelsi og raunveruleg frjáls samkeppni að vera meðal lykilatriða fúnkerandi samfélags. En það segir okkur – enn einu sinni – að forðast beri ofríki einsleitrar hugmyndafræði, hverju nafni sem hún nefnist.

Okkar vandamál eru jafnvel ýktari vegna þess forna kerfis sérhagsmuna, valdasamþjöppunar og kunningja-hyglunar sem kæft hefur eðlilega og frjálsa samkeppni um bestu hugmyndirnar og besta fólkið. Tilhneigingin til einsleitni, valdaþjöppunar og fákeppni er okkar versti óvinur.

Framkvæmd hinnar íslensku einkavæðingar – eins þörf og hún var – hefur misheppnast herfilega. Ekki mun duga að lappa uppá kerfið, það þarf að núllstilla og byrja uppá nýtt á forsendum almannahagsmuna. Það er mannlegt að ríghalda í afneitunina, troða marvaðann í von um kraftaverk, reyna að bjarga einhverju úr rústunum. En nú er nóg komið. Kosningar einar og sér munu ekki leysa vandann.

Stjórnlagaþing og endurnýjun stjórnarskrár er fyrsti áfanginn að nýja Íslandi; samfélagi sem trúir á samspil mótvægra krafta og hið skapandi ferli tilrauna, mistaka og endurbóta.

Við þurfum opið samfélag með ákveðnu grunn öryggisneti, þar sem skýrar leikreglur hvetja til sköpunar og frumkvæðis; samfélag sem deilir ekki endilega sameiginlegri pólitískri sýn, en skilur mikilvægi flókinna þróunarferla á borð við vísindarannsóknir, samkeppni, listræna tjáningu og tækniuppgötvanir; samfélag sem skilur að útkoman er ekki fyrirfram gefin, en um leið undir okkur komin.

Ég held að fólk með þessi viðhorf sé að finna í öllum flokkum og mjög víða út um allt samfélagið. Það má þekkja það á því að það óttast ekki framtíðina og getur ekki beðið eftir að fá að leggja hönd á plóg.

Flokkar: Pólitík · ísland

Annað lýðveldið verður sjötta útgáfan af Íslandi

þriðjudagur, 13 janúar 2009 · 2 Ummæli

Hjálpi okkur nú allar góðar vættir.

Hjálpi okkur nú allar góðar vættir.

Nú á efstu dögum lýðveldisins er einboðið að fylkja sér um hugmynd Njarðar P. Njarðvík; stjórnlagaþing og nýja stjórnarskrá, endurreisn Alþingis og gefa allt uppá nýtt. Allt fjas um annað er sem fiðluleikur á brennandi þaki Rómar. Hér hefur hvort eð er lítið breyst í þúsund ár og tími til kominn að þræða aðra slóða.

Þetta yrði þá Ísland 6.o. (meira…)

Flokkar: Pólitík · ísland
Tagged: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,

Undur og ævintýr

þriðjudagur, 11 nóvember 2008 · 2 Ummæli

Undur og ævintýr þessa hausts eru svo mörg að maður veit varla sitt rjúkandi ráð. Það nýjasta er að svo virðist sem bréf íslenskra stjórnvalda til IMF sé týnt og forsætisráðherra er alveg steinhissa, jafnvel meira en þegar hann heyrði frá blaðamönnum að Pólverjar ætluðu að lána okkur pening óumbeðnir. Þá hefur Wall Street Journal eftir finnska forsætisráðuneytinu að Íslendingar hafi enn ekki lagt fram skýr plön um endurreisn og því geti Norðurlandaþjóðirnar ekki ákveðið sig varðandi stuðning. Ekki hefur enn komið fram hvort forsætisráðherra sé líka hissa á þessu.

Hvernig er hægt að halda svona áfram? (meira…)

Flokkar: Kvikmyndir · Pólitík · Tilveran · ísland

Mörg álit – lítil greining

miðvikudagur, 9 apríl 2008 · 1 ummæli

Ég skil ekki alveg hversvegna það þarf að vera Financial Times sem fyrstur fjölmiðla – að mér vitandi – birtir hina fróðlegu frásögn um fund nokkurra stjórnenda vogunarsjóða á 101 Reykjavík í janúar s.l. Hvar voru íslenskir fjölmiðlar? Sér í lagi ef það er rétt sem FT segir, að þessi saga hafi gengið manna á milli í íslenska fjármálaheiminum síðustu mánuði. Er ekki eðlilegt að ætla að þeir blaðamenn íslenskir sem hafa sérhæft sig í fréttum úr fjármálaheiminum hefðu fengið veður af þessari sögu? Hafa þeir kannski vitað um hana en þagað? Eða hafa þeir bara verið útá túni og láta nú FT taka sig í bólinu? (meira…)

Flokkar: Fjölmiðlar · Tilveran · ísland