Ég hætti um áramótin sem ritstjóri Lands & sona, en sagði ekki frá því á vefnum fyrr en í dag. Hafði þá séð að Mogginn var að velta fyrir sér hvað liði tíðindaleysinu á síðunni. Það er ekki slæmt að hætta eftir svona ummæli. En kveðjubréfið er svona (og má líka sjá hér).
Ef til vill eru sumir lesendur vefsins að furða sig á hversvegna enn er verið að óska gleðilegra jóla, árs og friðar á forsíðunni. Ég sé að Morgunblaðið veltir því fyrir sér í klausu í fyrradag hvort þetta sé til marks um að kvikmyndaárið 2009 verði tíðindaminna en nýliðið ár. Sem betur fer eru litlar sem engar líkur á því, allt er á fullu í bransanum og fjölmörg verkefni í startholunum. Kannski ekki síst vegna þess að fyrir kvikmyndagerðarmenn er kreppuástand engin sérstök tíðindi. Hinsvegar er það svo að s.l. sumar óskaði ég eftir því við stjórn ÍKSA að láta af störfum um áramótin. Því miður hefur ráðning nýs ritstjóra tafist nokkuð og því verður örlítið gat í fréttaflutningi vefsins, en stjórn ÍKSA tjáir mér að væntanlega verði gengið frá ráðningunni í næstu viku.
Í framhaldinu langar mig að stikla á stóru í 14 ára sögu L&S: (meira…)


