Hvað vakir fyrir Jóni Kaldal, ritstjóra Fréttablaðsins? Hann talar um að minnka þurfi tortryggni í samfélaginu og sakar Evu Joly um að auka á hana.
Evu Joly?
Skyldu vera einhverjir aðrir en Eva Joly að mati Jóns Kaldal sem hafa skapað tortryggni í samfélaginu? Og hvernig nákvæmlega á að draga úr þessari tortryggni þegar nær allt traust á pólitíkusum og viðskiptajöfrum er horfið? Telur hann að hægt sé að auka traustið með einhverju öðru en að láta verkin tala? Eru kannski einhverjir sérstakir spunameistarar sem hann vill að við förum að trúa á?
http://visir.is/article/20090617/SKODANIR/700024652


6 responses so far ↓
Gústaf Níelsson // miðvikudagur, 17 júní 2009 kl. 18:18 |
Fyrir Jóni Kaldal vakir það eitt að vekja athygli á því að engin þörf er á pólitískum saksóknara. Pólitískir saksóknarar verða alltaf til í umróti breytinga, svo ekki sé nú talað um byltinga. Frú Joly sækir sér fyrirmyndir í frönsku byltinguna eða hvað?
Hörður Tómasson // miðvikudagur, 17 júní 2009 kl. 18:58 |
Ég segi nú bara fyrir mig að aðferðirnar í frönsku byltingunni verða sífellt meira aðlaðandi.
Gústaf Níelsson // miðvikudagur, 17 júní 2009 kl. 19:45 |
Þú myndir trúlega ekki segja þetta Hörður á leið undir fallöxina, saklaus? Er það nokkuð?
Þorkell // miðvikudagur, 17 júní 2009 kl. 22:32 |
Stóri misskilningurinn er sá að Eva Joly er bara ráðgjafi. Það er ekkert sem segir að ráðgjafi megi ekki hafa sterkar skoðanir á málum sem hann er til ráðgjafar um. Ýmsir, þar á meðal nokkrir lögmenn, virðast standa í þeirri trú að Eva sé einhvers konar saksóknari???? Hún hefur hins vegar enga aðkomu að málinu að lögum. Veit ekki til þess að hún hafi fengið einhvers konar skipun sem embættismaður á Íslandi. Sérstakur saksóknari getur hlustað á hennar ráðgjöf sem og ráðgjöf fjölda annarra sem hafa eflaust ýmsar skoðanir á málunum. Með öðrum orðum þá fellur allt þetta vanhæfiskjaftæði um sjálft sig einfaldlega af þessum sökum…
Th.Jökull Elisson // fimmtudagur, 18 júní 2009 kl. 2:13 |
Til Kolbeinseyjar með Jón Kaldal, frekar en fallöxina.
Th.Jökull Elisson // fimmtudagur, 18 júní 2009 kl. 2:20 |
Hæstvirtur Jón Kaldal ætti að tala sem minnst um íslenskt réttarfar. Við erum komnir með kúkinn upp á herðar og orðnir að athlægi út um allan heim.
Íslenskt réttarfar?
Þvuh.