Ásgrímur Kristján Sverrisson

Entries from febrúar 2008

Olía og blóð: Coen bræður, Óskarinn og There Will Be Blood

fimmtudagur, 28 febrúar 2008 · 1 ummæli

Það er tæpur aldarfjórðungur síðan ég gekk hugsi útúr Tónabíói eftir að hafa séð kvikmynd sem ég vissi ekki alveg hvað mér átti að finnast um. Í aðra röndina fannst mér þetta ómerkileg b-mynd með subbulegu ofbeldi. Á hinn bóginn var hún gerð af miklum sannfæringarkrafti og náði að kveikja afar sérkennilegt og heillandi andrúmsloft. Var þetta bölvað rusl eða gargandi snilld?

Myndin hét Blood Simple og var fyrsta mynd þá alls óþekktra bræðra, þeirra Joels og Ethan Coen. (meira…)

Flokkar: Kvikmyndir

Menn með sýn

fimmtudagur, 7 febrúar 2008 · Rita ummæli

Jæja það er verðlaunatíð í bíóunum, það er að segja ekki þverfótað fyrir myndum sem annaðhvort eru tilnefndar eða hafa þegar fengið klapp á bakið. Hér eru tvær þeirra, annarsvegar Charlie Wilson’s War og hinsvegar Sweeney Todd. Þær koma úr sitthvorri áttinni en eiga það kannski sameiginlegt að vera báðar úr smiðju manna með afgerandi sýn á tilveruna.

(meira…)

Flokkar: Kvikmyndir