2007 var þokkalegt bíóár. Slatti af fínum myndum en ekki kannski þannig að jörð skylfi. Ekkert vantaði hinsvegar uppá offramboð á rusli eins og venjulega, en alþjóðleg kvikmyndahátíð myndaði ágætis mótvægi, ásamt sumum mynda Græna ljóssins. Íslenskt bíó var áfram á góðri siglingu frá fyrra ári, auk þess sem Næturvaktin startaði íslenska sjónvarpsmyndavorinu. Allt útlit er jafnframt fyrir að góðir hlutir haldi áfram að gerast á nýju ári. (meira…)
Entries from desember 2007
Gönguklúbburinn Grímur áramót 07/08
laugardagur, 29 desember 2007 · 1 ummæli
Svona er staðan á gönguklúbbnum um áramót 07/08. Frá vinstri: Pétur Óskarsson, Kári Eiríksson, Úlfur Gronvold, Bergur Ólafsson, Hallur Helgason og Ásgrímur Sverrisson. Davíð Þór Jónsson var fjarverandi.
Góðar stundir.
Flokkar: Tilveran
Tagged: Gönguklúbburinn Grímur
Aðventumyndir
fimmtudagur, 20 desember 2007 · Rita ummæli
Nú er á aðventu og þá er þarft og gott að íhuga tilvist sína og tilgang. Þegar best lætur eru kvikmyndirnar sálarspegill og fátt er betra fyrir sálina en að horfa af og til á sjálfa sig í góðum spegli. Hér eru tíu kvikmyndir sem allar spegla sannar sögur úr sálarlífinu. Ég hef leyft mér að kalla þær Aðventumyndir, ekki vegna þess að þær hafi eitthvað með aðventuna að gera heldur vegna þess að þær smellpassa einhvernveginn inní tíðina. (meira…)
Flokkar: Kvikmyndir
Leitin að sameiginlegri minningu
fimmtudagur, 13 desember 2007 · 1 ummæli

Í þeirri fínu mynd Grand Canyon eftir Lawrence Kasdan, leikur Steve Martin kvikmyndaframleiðanda í Hollywood sem hefur sérhæft sig í blóðugum ofbeldismyndum. Um miðja mynd verður hann sjálfur fyrir árás ofbeldismanns og fær í kjölfarið vitrun: nú skuli hann helga líf sitt göfugum málstað og gera myndir sem freista þess að bjarga heiminum. (meira…)
Flokkar: Kvikmyndir
4 mánuðir 3 vikur og 2 dagar
fimmtudagur, 6 desember 2007 · Rita ummæli

Það þarf ekki að koma á óvart að rúmenska myndin 4 mánuðir, 3 vikur og 2 dagar eftir Christian Mungiu var valin mynd ársins á Evrópsku kvikmyndaverðlaununum, sem afhent voru í Berlín síðastliðinn laugardag. Myndin hlaut Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í vor og hefur síðan farið sigurför um heimsbyggðina, með viðkomu hér á landi á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í haust. Myndin verður svo fljótlega sýnd á almennum sýningum á vegum Græna ljóssins. (meira…)
Flokkar: Kvikmyndir



