Peter Greenaway kom hingað uppeftir um daginn og lýsti kvikmyndina dauða. Hann er reyndar búinn að tönnlast á þessu í mörg ár en gott og vel, ef kvikmyndirnar eru dauðar hljóta bíóin að vera einhverskonar grafreitur. Og hvernig er þá umhorfs í kirkjugarðinum? (meira…)
Entries from október 2007
Hugsjónir gegn veruleika
fimmtudagur, 18 október 2007 · Rita ummæli

Ég verð að viðurkenna að ég er svolítið veikur fyrir pólitísku drama úr samtímanum, það er að segja kvikmyndum og sjónvarpsefni sem stökkva til okkar næstum beint af forsíðum blaðanna. Slíkar sögur hafa gjarnan áríðandi yfirbragð, um leið og þær kristalla átök um grundvallarhugmyndir – rétt og rangt – og ekki síst hvernig háleitum hugsjónum farnast í sambúð við kaldan veruleikann. (meira…)
Flokkar: Kvikmyndir · Pólitík · Sjónvarp
Að afneita rasisma
fimmtudagur, 11 október 2007 · Rita ummæli
Í kjölfar furðulegrar endurútgáfu á gamalli bók sem kallast Tíu litlir negrastrákar hafa ýmsir mótmælt því harðlega að hér sé rasismi á ferðinni. Að mati þessa fólks vilja þeir sem gagnrýna endurútgáfuna helst stunda ritskoðun og bókabrennur. Já, er það ekki klassísk umræðuaðferð að forðast eins og heitan eldinn að tala um kjarna málsins?
Flokkar: Bækur · Kvikmyndir · Pólitík
Að kasta vantrúnni
fimmtudagur, 4 október 2007 · Rita ummæli
Í ísraelsku myndinni Heimsókn hljómsveitarinnar, sem nú er sýnd á kvikmyndahátíð, segir af egypskri lögregluhljómsveit sem er á leið á menningarhátíð í ísraelskum bæ. Eftir að hafa séð myndina var ég farinn að trúa því að til sé staður og stund þar sem hið ómögulega getur gerst, svo ég spurði Eran Kolirin, leikstjóra myndarinnar, hvort þetta gæti átt sér stað í hans heimalandi hér og nú.
Hann aftók það með öllu. En það skiptir engu máli sagði hann, mér er alveg sama um raunveruleikann. (meira…)
Flokkar: Kvikmyndir

