Ásgrímur Kristján Sverrisson

Entries from apríl 2007

Hvernig tekið skal á fasisma að hætti Woody Allen

miðvikudagur, 25 apríl 2007 · Rita ummæli

Í tilefni síðustu færslu: Kári vinur minn minnti mig á eftirfarandi senu úr Manhattan eftir Woody Allen þar sem fram fara gáfulegar samræður um hvernig glíma eigi við fasískar tilhneigingar í samfélaginu. Óborganlegt. (Woody er Isaac):

[Man]: ”I heard you quit your job?”

Isaac: “Yeah, a real self-destructive impulse. You know, I want to write a book, so I, so I …  Has anybody read that nazis are going to march in New Jersey, you know?  I read this in the newspaper, we should go down there, get  some guys together, you know, get some bricks and baseball bats and really explain things to them.”

[Man]: “There was this devastating satirical piece on that on the op-ed page of the Times.  It is devastating.”

Isaac: “Well, well, a satirical piece in the Times is one thing, but bricks and baseball bats really gets right to the point.”

[Woman]: “Oh, but really biting satire is always better than physical force.”

Isaac: “No, physical force is always better with nazis.  Cos it’s hard to satirize a guy with shiny boots.”

Flokkar: Kvikmyndir · Pólitík

Leiðin til fasisma í tíu léttum skrefum

þriðjudagur, 24 apríl 2007 · Rita ummæli

Eldur � ReichstagHún er hugguleg, eða hitt þó heldur, hugleiðing Naomi Wolf í The Guardian í dag. Þar veltir hún því fyrir sér hvort það geti verið að Bandaríkin séu á öruggri siglingu til fasisma. Hún bendir á að það sé erfitt að byggja upp og viðhalda lýðræði en afar auðvelt að afnema það. Til séu skýrir leiðarvísar um hvernig megi gera það og þeir samanstandi af ákveðnum aðgerðum sem jafnan eru framkvæmdar þegar einræðisstjórn leggur niður lýðræði í tilteknu landi eða finnur þörf hjá sér til að kveða niður andstöðu. Hún segir jafnframt að öllum þessum aðgerðum hafi verið hrint í framkvæmd vestanhafs á undanförnum árum með einum eða öðrum hætti. (meira…)

Flokkar: Pólitík

Nágrannakonan (La Femme d’à côté)****

þriðjudagur, 17 apríl 2007 · Rita ummæli

Endurnýjaði kynnin við Nágrannakonu Truffauts (La Femme d’à côté, 1981) og það gladdi mig að myndin er enn í dag jafn fjári góð – ef ekki betri. Þetta er myndin sem gerði Fanny Ardant að stjörnu og þvílík innkoma. Gerard Depardieu ekki síðri. Þetta er mynd um fullorðna og fyrir fullorðna, alveg afsökunarlaust. (meira…)

Flokkar: Kvikmyndir

The OH in Ohio **

þriðjudagur, 10 apríl 2007 · Rita ummæli

Kynlífskómedía úr amerísku indí-deildinni um hjón sem skilja vegna áhugaleysis konunnar um kynlíf. Maðurinn (Paul Rudd) fer og riðlast á Mischa Barton, en konan (Parker Posey) leitar G-blettsins með hjálp Danny De Vito. Allt svo sem þokkalegt en samt flatt og fyrirsjáanlegt. Gerist vissulega í Ohio en einhvernveginn vantar þetta OH…

Flokkar: Kvikmyndir

Meet the Robinsons ***

mánudagur, 9 apríl 2007 · Rita ummæli

Meet the Robinsons er nýjasta Disney teiknimyndin og hér á landi er hún sýnd með þrívíddartækni. Þetta er jafnframt fyrsta myndin sem höfuðsnillingurinn John Lasseter frá Pixar hefur umsjón með hjá Disney, eftir að risinn keypti þá gullgæs. Lasseter mun þó hafa komið að verkinu hálfkláruðu og látið endurvinna hana að stórum hluta. Pixar-touchið leynir sér ekki, myndin er litrík, lífleg og uppáfinndingasöm hvað myndræna úrvinnslu varðar. Um leið er óhætt að segja að þrívíddarelementið svínvirkar. Sú tilfinning að vera staddur inní myndinni kemst vel til skila. Ýmis minni eru sótt í Back to the Future seríuna, með viðkomu í Glæstum vonum Dickens og teiknimyndaseríunni Þotufólkið (The Jetsons). Myndin líður þó nokkuð fyrir tiltölulega dauflega karaktersköpun og fær þriðju stjörnuna fyrst og fremst fyrir hina skemmtilegu þrívíddarupplifun. Mér skilst að Hollywood ætli að koma með skriðu af þrívíddarmyndum á næstunni og verður fróðlegt að sjá hvernig til tekst þegar um stórar hasarmyndir verður að ræða.

Flokkar: Kvikmyndir

Clerks II ***

mánudagur, 9 apríl 2007 · Rita ummæli

Kevin Smith er kannski ekki mesta kvikmyndaséní Ameríkana, en fáir skrifa skemmtilegri samtöl, sem gjarnan eru afskaplega óviðeigandi og ágætis mótefni gegn hinni þreytandi en vel meinandi rétttrúnaðarhyggju. Smith er skáld iðjuleysingjanna, fólksins sem hefur allt til að bera, lifir í allsnægtaþjóðfélaginu en finnur sér ekki farveg í kapphlaupinu – né eiginlega nokkru öðru ef því er að skipta. Chasing Amy er hans besta mynd hingað til en þessi er ekki síður fín. Líkt og nafnið segir til um er þetta framhald af myndinni sem skóp nafn hans. Sú var gerð fyrir túkall í svart/hvítu en telst einn helsti íkon bandarískra “independent” mynda. Fjórmenningarnir Dante, Randall, Silent Bob og Jay eru allir mættir hér aftur, tíu árum eldri en ekkert endilega vitrari. Samræðurnar eru á mjög lágu en meinfyndnu plani, Rosario Dawson er dásemd og svo er ótalið uppgjörið með asnanum… vel heppnuð skemmtun.

Flokkar: Kvikmyndir

Útbreiðsla á slúðri

þriðjudagur, 3 apríl 2007 · Rita ummæli

Hagur Hafnarfjarðar grunar álversandstæðinga um stórfellt svindl (visir.is)
Hafnfirðingum fjölgaði með eðlilegum hætti (visir.is)
Álverskosning: Brögð í tafli? (ruv.is)
Álverskosning: „Engir fjöldaflutningar“ (ruv.is)
Hagur Hafnarfjarðar segir brögð í tafli (mbl.is)
Engin óeðlileg fjölgun á kjörskrá í Hafnarfirði (mbl.is)

Hversvegna gáfu virðulegir fjölmiðlar tapsárum félögum í Hag Hafnarfjarðar tækifæri til að stíga á stokk með tilhæfulausar aðdróttanir um kosningasvindl? Á hvern hátt er hugdetta þessa fólks frétt? Hvað er það í þessari uppákomu sem á erindi til almennings? Getur hver sem er byrjað að bulla eitthvað og er þá alveg sjálfsagt að slá því upp? Hefði ekki t.d. verið hægðarleikur fyrir þessa fjölmiðla að grafast fyrir um málið áður en frétt er send út? Á nokkrum mínútum hefðu þeir komist að því að allt var þetta byggt á sandi. Verður þetta ekki að teljast frekar nöturlegt form kranablaðamennsku? Að vísu er einn ljós punktur í þessu fíaskói; almenningur hefur verið upplýstur um að málflutningi Hags Hafnarfjarðar skuli tekið með miklum fyrirvara.

Flokkar: Fjölmiðlar · Pólitík

Í afneitun

þriðjudagur, 3 apríl 2007 · Rita ummæli

Það hefur verið athyglisvert, en um leið skelfilega fyrirsjáanlegt, að fylgjast með viðbrögðum pólitíkusa við álverskosningunni. Populistar í hópi stjórnarandstæðinga berja sér á brjóst og ofmeta niðurstöðuna meðan margir stjórnarliða keppast hver um annan þveran við að tala úrslitin niður. Er þar flest tínt til; meirihlutinn var óvenju lítill, bæjarstjórnarmeirihlutinn skaut sér undan ábyrgð með afstöðuleysi, úrslitin breyta engu því virkjað verður áfram og álver spretta upp annarsstaðar, kosningarnar voru haldnar of seint í ferlinu (hversvegna er þetta að koma fram núna?) og síðast en ekki síst; iðnaðarráðherra og formaður Framsóknar heldur því blákalt fram, þvert ofan í gildandi lög, að kosningin sé ekki bindandi.

Hér vantar eitthvað. T.d. eðlilega kurteisi og virðingu gagnvart kjósendum og lýðræðislegum niðurstöðum. Slík jarðtenging bæri vott um að þetta fólk væri sér meðvitað um að það sækir umboð sitt til almennings og starfar í hans þágu. Í staðinn fyrir að hljóma eins og fíklar í afneitun.

Rétturinn til lýðræðislegra kosninga og framkvæmd þeirrar niðurstöðu sem þær gefa, er ekki eitthvað sem gjafmildir pólitíkusar geta fært almenningi vegna þess að þeir eru í því skapinu þann daginn. Þetta eru beinar ordrur frá hinu æðsta valdi. Það getur vissulega stundum verið flókið að túlka niðurstöðurnar. En það er hlutverk stjórnmálamanna og þeim er engin vorkunn að finna út úr því.

Og hvaða tal er þetta hjá sumum þeirra um að úrslit kosninganna verði virt? En ekki hvað? Engu er líkara en að þeir hafi hugsað málið vandlega og komist að þessari niðurstöðu. Af manngæsku sinni og lýðræðisást. Hver hefur eitthvað með svona yfirlýsingar að gera? Hvaðan kemur þessum aðilum sú hugsun að þörf sé á að taka þetta sérstaklega fram? Er einhver eftirspurn eftir fullvissu frá pólitíkusum um að farið verði að lögum?

Forsætisráðherra hefur þó sýnt frekar hófsöm viðbrögð, haldið ró sinni, eins og raunar hans er yfirleitt von og vísa. Hef hann grunaðan um að vera jafnaðarmaður í hjarta sínu, eins og margir Sjálfstæðismenn.

Flokkar: Pólitík

Framtíð RÚV er núna

mánudagur, 2 apríl 2007 · Rita ummæli

Svo skemmtilega vildi til að RÚV ohf. tók til starfa þann 1. apríl og í tilefni dagsins birti Sjónvarpið gabbfrétt um að rýmingarsala stæði yfir á dýrgripum stofnunarinnar. Sjálfsagt hefur einhverjum svelgst á kaffinu en það er freistandi að túlka þessa uppákomu sem táknræna flórmokstursgjörð frá hendi útvarpsstjóra (sem lék aðalhlutverkið í fréttinni) og nýtt upphaf. RÚV hefur nú verið losað úr spennitreyjunni og getur farið að láta til sín taka með þeim krafti sem hæfir hlutverki þess og mikilvægi í samfélaginu. Til að það geti orðið þarf ekki aðeins að stórauka innlenda dagskrárgerð. Innihaldið er og verður lykilatriði. (meira…)

Flokkar: Sjónvarp

Álverskosning markar pólitísk tímamót

Sunnudagur, 1 apríl 2007 · Rita ummæli

Álmaður (ljósm. RAX)Niðurstaða íbúakosningar í Hafnarfirði um álversstækkunina markar tímamót í tvennum skilningi. Annarsvegar hefur það gerst í fyrsta skipti að kjósendur hafa gefið stefnu stjórnvalda í ákveðnu máli gula spjaldið. Þó að formlega sé verið að kjósa um innanbæjarmál (deiliskipulag) hefur kosningin áhrif langt út fyrir það málefni. Hinsvegar sýnir hin gríðargóða þátttaka (tæp 77%) að kjósendur, hvar í flokki sem þeir standa, vilja hafa þennan háttinn á; að geta sjálfir fengið að velja með beinum hætti um stór álitamál. Íslenskir stjórnmálamenn, sem löngum hafa lagt áherslu á þingræðið (kjörsvið stjórnmálaflokkanna), standa nú frammi fyrir þeirri staðreynd að kjósendur þeirra í einu stærsta bæjarfélagi landsins, vilja beint lýðræði í auknari mæli. Þeir munu þurfa, líklega sér þvert um geð, að taka nótis af þessum skilaboðum. 

Kjörsóknin sem slík er pólitískur sigur fyrir bæjarstjórn Hafnarfjarðar, með Lúðvík Geirsson í fararbroddi. Ákvörðunin um íbúakosningu um meiriháttar mál var tekin fyrir nokkrum árum og var um hana samstaða í bæjarstjórninni. En þegar tekin var ákvörðun um að hrinda stefnunni í framkvæmd með þessum tiltekna hætti, urðu margir allt í einu til að gagnrýna það. Gamalkunnar ásakanir um að kjörnir fulltrúar væru að forðast ábyrgð, urðu áberandi. Í kjarnann gengur þessi gagnrýni út á vantraust á kjósendum, enda fólu gagnrýnisraddirnar gjarnan í sér að almenningur hefði ekki þekkingu og yfirsýn til að fjalla um málið með skynsamlegum hætti. Komið hefur í ljós að almenningur er ósammála því mati. Kjörsóknin í gær er því kjaftshögg á þá stjórnmálamenn sem telja að stjórnmálin séu of mikilvæg til að blanda fáfróðum almúganum í þau.

En það er líka athyglisvert að Lúðvík og ýmsir félagar hans, eru kannski ekkert yfir sig ánægðir með sjálfa niðurstöðuna. Þrátt fyrir að hafa haldið sig réttilega til hlés í kosningabaráttunni og uppskorið harða gagnrýni og háðsglósur fyrir að gefa ekki upp afstöðu sína, var ljóst að meirihluti Samfylkingarinnar vildi veita Álverinu brautargengi í málinu. Það gæti því reynst snúið fyrir Lúðvík að horfa framan í Rannveigu Rist á næstunni. Ég er nokkuð viss um að hún vill t.d. ekki heyra hann segja: “Tjahh… fólkið hefur talað.” Þrátt fyrir að það sé rétt.

Ákvörðunin um að halda kosningu um þetta mál lýsir því skýrt að Lúðvík og félagar hafa skilning á hinu lýðræðislega ferli; að stjórnmálamenn lúta vilja fólksins, en ekki öfugt. Það kann að vera óþægilegt og flókið á stundum, enda er stjórnmálamannanna að finna hinum lýðræðislega vilja réttan farveg. Það hefur hinsvegar engin sagt að pólitík sé auðvelt viðfangsefni. Núna reynir á menn.

Í öllu þessu má ekki gleymast að Álverið í Straumsvík er gott fyrirtæki og hefur reynst Hafnfirðingum ágætlega, sem og þjóðinni. Þetta er ekki svart/hvítt mál. Hafnfirðingar eru t.d. ekki að hafna Álverinu og það væri rangt af aðstandendum þess og stuðningsmönnum að túlka niðurstöðurnar þannig. Fyrirtækið nýtur góðra kjara og almennrar velvildar. Þegar á heildina er litið er það í eðlilegu sambandi við umhverfi sitt. Rannveig Rist er afar hæfur stjórnandi og nýtur almenns trausts. Ólíklegt verður að teljast að hún muni ekki finna farsæla leið út úr þessari stöðu.

Í heildina fór kosningabaráttan vel fram af allra hálfu. Vissulega má tína til aðfinnslur en í stórum dráttum náðu málsaðilar; fylgjendur, andstæðingar og bæjaryfirvöld, að koma upplýsingum og sjónarmiðum til fólksins. Um það snýst málið þegar upp er staðið. Álverið stóð vissulega fyrir afar öflugri og vel skipulagðri PR- og auglýsingaherferð, sem kostaði mikið fé. Á móti hafði Sól í Straumi úr litlu auglýsingafé að spila en lék af mikilli íþrótt á velli almannatengsla. Auk þess nutu samtökin víðtæks pólitísks stuðnings (eins og Álverið) og renndu sér fimlega á þeirri umhverfisverndaröldu sem nú skellur á landinu. Eina verulega fýlubomban var hin óbeina hótun Álversins um að pakka saman ef ekki yrði af samþykkt. Þetta var stór séns og líklegt að hún hafi hrætt marga til fylgis, en að sama skapi hefur hún einnig skapað andúð margra kjósenda sem kunna ekki við að láta stilla sér upp við vegg.

Kosningarnar í Hafnarfirði 31. mars eru því á ýmsan hátt vendipunktur. Þær eru líka einskonar rásmerki komandi Alþingiskosninga. Það verður afar fróðlegt að sjá hvernig umræðan mótast á næstunni í ljósi þessara tíðinda, hvaða áhrif þetta kemur til með að hafa á þingkosningarnar og næstu framtíð.

Flokkar: Pólitík

Björn fer á kostum í aprílgabbi

Sunnudagur, 1 apríl 2007 · Rita ummæli

Björn Bjarnason fór á kostum sem ábúðarmikill dómsmálaráðherra í aprílgabbfrétt Stöðvar 2. Þar hélt hann því fram að áhuginn á stofnun varaliðs lögreglunnar væri svo mikill að íhuga þyrfti að bæta við hinn fyrirhugaða 24o manna flokk og drífa í að koma upp þjálfunarbúðum á Keflavíkurflugvelli. Enn skemmtilegra er svo að hugsa til þess að tæplega þarf aprílgabb til að fá Björn til að espa upp fjendur sína og fréttin hefði alveg getað verið alvöru. Og talandi um það, öryggispælingar Björns eru gott dæmi um mál sem populistum veitist auðvelt að hafa að skotspóni, en málið er bara því miður ekki svona einfalt… En allavega er grínið hjá Birni ólíkt skemmtilegra en vælið í ýmsum öðrum pólitíkusum sem kveinka sér undan súrum kosningaberjum…

Flokkar: Pólitík