Hér er fjallað um Óskarsverðlaunin, endurreistan Fjalakött og forsíðu Morgunblaðsins í dag, sem er athyglisverð fyrir þá sem hafa áhuga á kvikmyndum. Þrennt var athyglisverðast á nýafstöðnu Óskarskvöldi; “grand old man” Scorsese fékk loksins afar síðbúna styttu en að vísu fyrir mynd sem er ágæt en ekki ein af hans bestu, sömuleiðis annar höfuðsnillingur – Ennio Morricone – sem Óskari hefur einnig tekist að forðast hingað til af einhverjum óskiljanlegum ástæðum, en fékk nú heiðursverðlaunin og þýska myndin Líf annarra sem tók erlenda flokkinn og lyftir þar með lokinu af þeim suðupotti sem kraumar nú hjá þessu forna kvikmyndaveldi. (meira…)
Entries from febrúar 2007
Óskarsúrslit, endurreisn Fjalakattarins og forsíða Moggans
þriðjudagur, 27 febrúar 2007 · Rita ummæli
Flokkar: Kvikmyndir
Andríkir ofsatrúarmenn ofbjóða Mogganum
Sunnudagur, 18 febrúar 2007 · Rita ummæli
Stundum kíki ég á hina andríku ofsatrúarmenn á Vef-Þjóðviljanum. Þeir eru yfirleitt fullir af þjósti og vandlætingu yfir því sem þeir telja forsjárhyggju og andfrelsislega hugsun í þjóðfélaginu og heiminum. Stundum hafa þeir meira að segja nokkuð til síns máls. Og fyrir kemur að þeir séu meira að segja fyndnir. Þó er mesta grínið ábyggilega ekki þannig meint hjá þeim, enda virðist það býsna alvörugefið fyrirheit. Í haus vefritsins stendur nefnilega m.a.:”Við gerum okkar besta til að blaðið sé eins ólíkt Þjóðviljanum heitnum og mögulegt er.” Það er skemmst frá því að segja að af einhverjum furðulegum ástæðum hefur þeim ávallt mistekist þetta. (meira…)
Flokkar: Pólitík
Little Miss Sunshine, Notes on a Scandal, Silvía Nótt og Eurovision
Sunnudagur, 18 febrúar 2007 · Rita ummæli
Hér er fjallað um tvær myndir Græna ljóssins; Little Miss Sunshine og Notes on a Scandal sem báðar eru afbragðsfínar, samtíðarspegilinn Silvíu Nótt sem snúin er aftur á Skjá einum og Eurovision forkeppnina í Sjónvarpinu sem lauk á laugardagskvöld. (meira…)
Flokkar: Kvikmyndir · Sjónvarp
Lagt útaf BAFTA verðlaunum
mánudagur, 12 febrúar 2007 · Rita ummæli
Í Ástríki í Bretalandi segir af því þegar Ástríkur hittir góðlegan Breta og hrífst af klæðnaði hans. Ástríkur þreifar á fötunum og spyr: “Hvaða efni er þetta?” Og Bretinn svarar: “Þetta er tweed.” “Jæja”, segir Ástríkur, “og er það endingargott?”. “Veit það ekki”, svarar sá breski, “ég hef bara átt það í þrjátíu ár.”
“Tjallinn er tjúll”, sagði Steinríkur gjarnan og víst er að Bretar hafa haft orð á sér fyrir marga sérviskuna í gegnum tíðina. Á móti má benda á að Bretar eru alveg jafn hissa á útlendingum. Sagan segir að þegar rætt var um upptöku Evrunnar á sínum tíma þótti Bretum það alveg koma til greina – þar til þeir uppgötvuðu að ekki stæði til að hafa mynd af drottningunni á gjaldmiðlinum!
BAFTA-verðlaunin eru skondin uppákoma, eitt af mörgum dæmum um þá tilhneigingu minna kæru Breta að líta enn á sig sem miðju alheimsins – eða a.m.k. hérumbil. BAFTA eru nefnilega ekki lókal verðlaun, þar sem bara innlendar kvikmyndir fá klapp á bakið, heldur alheimsverðlaun líkt og Óskar stóri frændi (les.: hátíð þar sem breskar og bandarískar myndir fá að keppa um verðlaun sín á milli en “útlendingar” fá líka að vera með í sér flokki). Þessvegna fara leikar gjarnan þannig að bandarískar myndir fá toppverðlaunin. Og þá segja þeir bara “en ekki hvað?”, því hér er allt vegið og metið á ólympískum grunni. Þegar hinsvegar bresk mynd fær þeirra eigin verðlaun benda þeir stoltir á þá óumdeilanlegu staðreynd að þeir eru alveg jafn góðir, ef ekki betri en Ameríkanar (og hafa auðvitað kennt þeim allt sem þeir kunna). (meira…)
Flokkar: Kvikmyndir · Pólitík

