Eftir nokkra umhugsun hef ég ákveðið að styðja hvalveiðar. Allavega í dag. Þetta er einfaldlega töff. Í fyrsta lagi er þetta innilega pólitískt incorrect. Það út fyrir sig er töff. Við erum að senda heiminum fingurinn eins og ástralski utanríkisráðherrann benti á (það er töff). Í öðru lagi er þetta líklega ekónómískt glapræði – sem er töff. Ekki er sérlega líklegt að þetta borgi sig og um leið er líklegt að við munum tapa tekjum annarsstaðar. Sem er dáldið töff. Í þriðja lagi er þetta vinna fyrir karlmenn. Alvöru karlmenn. Sem er töff. Karlmennskan á undir högg að sækja í hinu ríkjandi andrúmslofti. Það er einhvernveginn alls ekki nógu töff. Í mér hefur vaknað eitthvað fól. Eiginlega mér þvert um geð og hug. En samt finnst mér það dáldið töff.
Entries from október 2006
Karlmennska og hvalveiðar
þriðjudagur, 24 október 2006 · 2 Ummæli
Flokkar: Pólitík
Útlönd, Ásgrímska og eðli alls sem er
þriðjudagur, 24 október 2006 · 2 Ummæli
Gönguklúbbur Gríms á gamlársdag 2005.
Mér þykir Davíð Þór vinur minn gera mér óþarflega hátt undir höfði í pistli á bloggi sínu þar sem hann segir ágæta öpunarkenningu sína lúta í duftið gagnvart því sem hann kallar “Ásgrímsku”. Kenninguna hafði ég viðrað í léttu spjalli okkar félaga á Súfistanum um daginn, eftir eina af okkar vikulegu kraftgöngum í Hafnarfirði, en hún gengur í stuttu máli útá það að ekkert er til nema það sem þú sérð eða skynjar á annan hátt hverju sinni (sjá frekari útleggingar í pistli Davíðs). Þó að ég sverji af mér djúpa trúarlega sannfæringu í þessum efnum fylgir öllu gamni nokkur alvara og þykist ég skynja að gestir á síðu Davíðs komi auga á þetta, enda bæði búnir að blanda Schopenhauer og The Matrix í málið. Takk fyrir félagsskapinn segi ég en vil þó benda á uppruna kenningarinnar ef það skyldi verða einhverjum til fróðleiks og skemmtunar. (meira…)
Flokkar: Tilveran
Tagged: Gönguklúbburinn Grímur

